Ríkisstjórnin heldur að hún ráði einhverju um sæstreng
21.7.2019 | 17:12
Talsmenn og stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar segja að til greina komi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aflsæstreng til ESB. Það er barnsleg bjartsýni, 3. orkupakki ESB tekur af öll tvímæli um hvaða regluverk og hver ræður því hvernig og hvenær sæstrengur verður lagður.
Með samþykkt 3. orkupakkans afsala íslensk stjórnvöld völdum og stjórnsýslu yfir orkukerfinu til ESB. Til þess að halda stjórn orkukerfisins heima veður að hafna 3. orkupakkanum eða segja EES-samningnum upp.
Athugasemdir
Þjóðaratkvæði ætti að vera um 3ja orkupakkann. Hann er trójuhesturinn sem okkur ber að forðast.
Ragnhildur Kolka, 21.7.2019 kl. 19:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.