Okkur er hótað með ESB
28.6.2019 | 18:33
Formaður starfshóps utanríkisráðuneytisins um úttekt á EES er greinilega hræddur um að ESB reki Ísland úr EES ef orkuyfirráðum, hrákjöts innflutningi og annarri áþján kóngsins í Brussel verður ekki hlýtt. Formaðurinn kemur frumlegri hótun á framfæri í Mogga í dag (28.6.2019):
"Sé aðild að EES hafnað yrði annaðhvort horfið aftur til fortíðar og tvíhliða viðskiptasamninga eða að nýju stefnt að ESB-aðild"
Maður verður hræddur, líklega best að hlýða kónginum.
Athugasemdir
Nei, að sjálfsögðu hlýðum við ekki þessum greinilega Brussel-heilaþvegna starfsmanni utanríkisráðuneytisins.
Að hugsa sér hvernig hann vogar sér að tala til þjóðarinnar!
Þetta sýnir nú spillingarandann í þessu skelfilega ráðuneyti Gulla Þórs.
Maður hélt að starfsmenn Stjórnarráðsins ættu að gæta hagsmuna Íslands, ekki stórvelda sem hafa sýnt sig að vera okkur fjandsamleg áður (í Icesave- og makrílmálunum með mjög frekjulegum árásarhætti).
Og þetta er jafnvel formaður starfshóps utanríkisráðuneytisins um úttekt á EES!
Eruð þið kannski að tala hér um Björn Bjarnason, fremur en formann einhverrar fastanefndar innan ráðuneytisins?
Jón Valur Jensson, 29.6.2019 kl. 16:22
Hér er dálítið merkileg grein um áróður ESB í Tékkóslóvakíu á sínum tíma Eigin kona mesta áróðurspólitíkus fékk stöðu áróðursdeildar ESB þar í landi Er ekki þetta að ske á Íslandi. https://www.brugesgroup.com/media-centre/papers/8-papers/786-federalist-thought-control-the-brussels-propaganda-machine?fbclid=IwAR0ZBaOb2NNkaox_YilN-w_pj2u2uiOeNf-os8Xp1cWDVihJVGKr6Gv5kzU
þetta er hreint ótrúlegt en sama og manni grunaði. Geymið greinina í hið minnsta.
Valdimar Samúelsson, 29.6.2019 kl. 22:18
Jú, nú sé ég það (fór inn á tengil ykkar), að þið áttuð einmitt við Björn Bjarnason. Og flott er þessi greining ykkar á makalausu bulli hans á bloggi sínu!
En myndin af honum er sú bezta sem ég hef séð lengi, sýnir hann í essinu sínu í sjónhverfinga-hlutverkinu:
Jón Valur Jensson, 30.6.2019 kl. 00:33
Ég las dæmin um rangfærslur Björns Bjarnasonar hér og þær eru ekki fáar. Hér er ein af þessum sex í pakka: "
Björn Bjarnason skrifar; EES-samningurinn stendur óhaggaður og fellur innan marka íslensku stjórnarskrárinnar-“ það er rangt;
Hið rétta: Erlendar stjórnvaldsstofnanir eiga ekki að hafa valdheimildir á Íslandi, það er brot á stjórnarskrá.
þessum rangfærslum verður að koma á framfæri og er ekki líðandi.
Helga Kristjánsdóttir, 30.6.2019 kl. 01:48
Gott fólk! takk fyrir ykkar innlegg. Við búum í stjórnlausu landi,á alþingi er gerð hver endaleisan eftir aðra, ekkert af viti.
Og nú ætlar þetta lið að kóróna vitleisuna með innleiðingu yfirráða ESB á stærstu orkulind þjóðarinnar.
Og Björn Bjarnason hjálpar til við ILLVIRKIÐ.
Við þurfum allir Íslendingar að 'AKALLA LANDVÆTTINA okkar.
KV af Suðurlandi
Óskar Kristinsson, 10.7.2019 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.