Eru hótanir Norðmanna að baki taugaveiklun stjórnvalda í 3OP?

Fundur Katrínar og Ernu Solberg í október 2018 afhjúpaði vel þrýstinginn á samþykkt Íslands á 3OP

-RÚV 29.10.2018: ..... EFTA-ríkin þrjú sem eiga aðild að EES settu þann fyrirvara að samþykki þjóðþinga ríkjanna þriggja yrði að liggja til grundvallar. Norðmenn hafa þegar samþykkt pakkann, sem og Liechtenstein, en hann tekur ekki gildi nema Ísland samþykki hann líka.

Við erum á einum markaði og það er snúið að standa utan stofnana sem taka ákvarðanirnar og við vonum því að það finnist lausn hvað Ísland snertir svo að við getum fullnægt þessum þáttum samninganna,“ segir norski forsætisráðherrann.

Þau hafa lagt mikla áherslu á þetta mál og eru auðvitað í annarri stöðu en Ísland þar sem þau eru auðvitað með sæstrengi til að mynda til annarra landa og EES-samstarfið líka. Þetta er hluti af EES-samstarfinu sem skiptir öll þessi lönd miklu máli,“ segir Katrín.

Katrín segir að málið verði tekið fyrir á Alþingi í febrúar. Solberg segir þær ekki hafa rætt hvaða staða komi upp hafni Alþingi þriðja orkupakkanum. „Við erum ekki með varaáætlun. Ég vona að Íslendingar sjái að til að þessu verði fylgt eftir og samþykkt,“ segir Solberg.  

„Við höfum ekki þrýst á en bent á það að það eru fleiri sem standa að EES-samningnum. Málið er mikilvægt fyrir Noreg en svo er Miðflokkurinn á móti EES-samningnum og flokkurinn hefur mikið látið til sín taka á Íslandi svo að Íslendingar verði á móti og þá gegn norskum hagsmunum.

" Viðtal í RÚV 29.10.2018 http://www.ruv.is/frett/hafnar-thrystingi-vegna-thridja-orkupakkans

Um mitt sumarið 2018 kom utanríkisráðherra Noregs til Ísland til að skoða heyrúllur, en meginmálið var að ræða 3 OP sem sýnir vel áherslu Noregs á málið.

Þegar forsætisráðherra Noregs notar orðalag eins og "..við höfum bent á að það eru fleiri sem standi að EES samningnum" og Katrín lætur hafa eftir sér "Þau hafa lagt mikla áherslu á þetta mál   ..og EES samstarfið líka"

- Er augljóst að norsk stjórnvöld hafa hótað íslenskum stjórnvöldum í málinu, sem er ekki nýtt, má rifja upp yfirgang norðmanna í Smugumálinu, Makríl og Kolmunamálum. Ætla stjórnvöld að keyra 3OP í gegn vegna hótanna norðmanna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það er ekkert vafamál að þarna er einn þrýstingurinn sem við verðum að hunsa. Við erum sjálfstæð þjóð og látum Norðmenn engan vegin komast upp með svona þrýsting. Þar fyrir utan þá eru norðmenn ekki einhuga um þetta.

Hitt er fjárglæfra elítan á Íslandi sem vill eiga og stjórna söluna og orkuskipti á rafmagninu en þar eru milljarðar í boði án rafstrengs yfir hafið. Það eru fleiri orkusölufyrirtæki en orkuframleiðendur. Salan er aðal gróða samsteypa sem við hefðum aldrei átt að samþykkja.  

Við áttum aldrei að taka inn þessa orku pakka 

Valdimar Samúelsson, 26.4.2019 kl. 16:04

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sennilega er það engin tilviljun að þeir sem styðja O3 beita fyrir sig EES samningnum.  Ljótt samt ef norskir standa þar að baki.

Kolbrún Hilmars, 26.4.2019 kl. 16:26

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Án orkupakkans eru líkur á að Norðmenn hafi betri samningsstöðu en undirsettir stofnun sem hefur vald til að ákvarðað magn. En kannski eru Norðmenn bara orðnir værukærir eins og Íslendingar og nenna ekki lengur að hugsa um hagsmuni þjóðar. Þetta gerist þegar allar veigamestu ákvarðanirnar eru teknar annars staðar. 

Ragnhildur Kolka, 27.4.2019 kl. 14:32

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

því miður held ég að það sé málið (værukærð-nenna)Ragnhildur. Svo upplifir maður sig vonda að lenda í smá deilum í persónulegum hópi um þessi mikilvægu mál,held samt áfram af því það er mitt hjartans mál. 

Helga Kristjánsdóttir, 27.4.2019 kl. 21:05

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Við skuldum hinum drambsömu hrokafullu Normönnum ekki neitt.  En það er niðurlægjandi fyrir okkur Íslendinga að fulltrúi okkar á erlendum vettvangi sé stelpukjáni sem setur stolt sitt í að skora sem hæstar fimmur á erlendum vettvangi svo sem skólastelpna er siður. 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 28.4.2019 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband