Persónuverndarfinngálkn ESB lent á Alþingi
30.5.2018 | 14:18
ESB hefur fyrirskipað að Alþingi samþykki persónuverndarlög ESB og þar með að ESB fái reglusetningavald og að íslensk stjórnvaldsstofnun og íslenskir dómstólar verði sett beint undir ESB:
Sérstök stofnun hérlendis, Persónuvernd, annast eftirlit með framkvæmd reglugerðar ESB nr. 2016/679, laga þessara og reglna sem settar verða samkvæmt þeim.
Evrópsk eftirlitsstofnun, Evrópska persónuverndarráðið, mun taka bindandi ákvarðanir gagnvart Persónuvernd. Fulltrúar Persónuverndar munu sitja í Evrópska persónuverndarráðinu án atkvæðisréttar.
Dómstóll ESB fær vald yfir íslenskum dómstólum:
Forúrskurður dómstóls ESB feli í sér bindandi niðurstöðu fyrir dómstól aðildarríkis EES.
(Ath. Evrópa þýðir ESB hér)
Það stendur semsé til að Alþingi afhendi ESB beint framkvæmdavald og dómsvald hérlendis.
https://www.frjalstland.is/2018/05/03/personuverndarlog-esb-gaetu-ordid-nytt-stjornarskrarbrot/
Athugasemdir
Það er kýrskýrt að íslenska stjórnarskráin er þverbrotin til þess að þóknast þessu skrifræðis skrímsli !
Gunnlaugur I., 31.5.2018 kl. 05:58
Nýtt? Eru til viðurlög/vernd gegn þvílíku(m)brotum Alþingis?
Helga Kristjánsdóttir, 31.5.2018 kl. 15:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.