Ógurleg hlýindi
2.6.2025 | 18:36
-"óhjákvæmilegt að 39% jökla jarðar bráðni-" jafnvel þótt takist að standa við Parísarsamkomulagið, ef ekki þá bráðna 75% jöklanna!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/01/39_prosent_jokla_jardarinnar_munu_bradna/
Þetta er haft eftir "vísindatímaritinu" Science. Rullan er kunnugleg, hefur hljómað í meir en 4 áratugi án þess að sýna nokkur merki um að rætast. Tímaritið er orðið þekkt meðal vandaðra loftslagsvísindamanna fyrir að dreifa lélegum vísindagreinum um loftslag.
Jökultoturnar okkar rýrnuðu á árunum 1900 til 1940 og aftur frá um 1970 til um 2010 þó jökulmagnið minnki lítið. Í vetur leið bætti Grænlandsjökull á sig 622 milljörðum tonna af ís sem er það mesta í nærri áratug og langt yfir meðaltali áranna 1981-2010.
Meira að segja hið vandaða atvinnuvegablað Bændablaðið féll ofaní loftslagskviksyndið í síðasta tölublaði. -"Sjávarflóð aukast-" er haft eftir Communications Earth & Environment sem er viðhengi annars "vísindatímarits", Nature, líka þekkt fyrir að birta ýkjur um loftslag. Og inni í blaðinu er vísað í IPCC sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en sem loftslagslygaskrifstofu Sameinuðuþjóðanna. Mælingar á sjávarborði eru óöruggar, sum lönd rísa, önnur lönd siga. https://clintel.org/in-memoriam-professor-nils-axel-morner/
Nú í byrjun júní er einmitt ein "hlýnunin" að skella á Íslandi með hríð og frosti. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/02/lysa_yfir_ovissustigi_vegna_nordanahlaupsins/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.6.2025 kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)