Frelsið á afmæli

LandsvættirMaðurinn sem átti mestan þátt í að Ísland fékk frelsi frá Evrópuvaldinu, þá Danaveldi, á afmæli í dag, Jón Sigurðsson fæddist fyrir 214 árum. https://jonsigurdsson.is/ Þegar svo Evrópuveldin komu af stað enn einni heimsstyrjöldinni 128 árum eftir fæðingu Jóns, og urðu upptekin við að drepa fólk hvert fyrir öðru, fékk Ísland loks tækifærið að losa sig endanlega undan evrópsku yfirvaldi og endurreisa frelsið. Lýðveldið var stofnað á 133 ára afmæli Jóns, 17. júní 1944. https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html

 

Þessa erfiðu 7 alda langa bardaga hafa núverndi ráðamenn okkar greinilega ekki heyrt um. Ríkistjórnin vinnur nú að því að koma Íslandi kirfilega undir Evrópuvaldið. Og hefur nú líka komið af stað tilraunum til þess að koma Íslandi í nýja Evrópustyrjöld með gömlu stríðsþjóðunum.

Þetta eru svik við frelsishetjurnar sem háðu bardagann fyrrum og lýstu yfir sjálfstæði, frelsi og hlutleysi Íslendinga.


Bloggfærslur 17. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband