ESB vill ekki frið
28.3.2025 | 12:51
Ístöðulaust forustufólk Íslands er boðað á fundi hjá Evrópusambandinu til þess að spilla fyrir friðarumleitunum Bandaríkjanna. Sambandið neitar nú að samþykkja nýjustu samninga og afnema höft á flutning korns og áburðar um Svartahaf. Frakkland og Bretland ætla að senda her inn i Úkraínu (Morgunblaðið 28.3.2025) sem þýðir hættulega útvíkkun stríðsins.
Okkar siðspillta forustufólk lepur upp stríðsæsingarnar í Evrópupótentátunum og er látið samþykkja aðgerðir gegn friði.
Okkar forustumenn eiga ekkert erindi á fundi hjá Evrópuleiðtogum um varnar- og hermál. Ísland er ekki í Evrópusambandinu en aftur á móti bandalagsríki Bandaríkjanna.
Vandi Bandaríkjanna er gamalgróinn stríðsandi í Evrópu og sviksemi Úkraínustjórnar sem hefur ekki staðið við neina samninga við Rússland. Fyrri samningur um kornútflutning var notaður til vopnaflutninga og Minsk-samningarnir um mannréttindi rússneskra íbúa var aldrei meiningin að efna þó Frakkar og Þjóðverjar hafi verið ábyrgðarmenn.
Íslandi ber að styðja okkar mikilvægustu bandamenn, Bandaríkjamenn, í að stöðva blóðsúthellingar í Úkraínu og Rússlandi, með skorinorðum og afgerandi yfirlýsingum.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)