EES-rafmagn og hveiti

eu-flageurope-1045334_960_720Við fáum framvegis rafmagn samkvæmt EES, það er að segja of lítið og of dýrt, við verðum að hætta að virkja Héraðsdómur fellir virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi

Alþingi gefur út lög uppúr EES-tilskipunum sem flæða stöðugt inn. Þær (2000/60, 2006/118, 2008/115, 2009/90 fjalla um ár og vatn) eru flóknar og ógreinilegar og hugsaðar fyrir þéttbýlt meginland, ekki Ísland, og brenglast þar að auki stundum í meðförunum.

Og dómarar landsins geta ekki túlkað þau af viti https://www.heradsdomstolar.is/domar/domur/?id=2ec984fd-d3f7-450b-bf46-a6fe25f2a47f og langar jafnvel að herma eftir Evrópusambandsdómum þó þeir eigi að dæma samkvæmt ladslöguum. Í íslensku lögunum stendur að -"Umhverfisstofnun getur heimilað breytingu á vatnshloti (vatnsmengi)  þegar tilgangur framkvæmdanna - vegur þyngra vegna almannaheilla - eða fyrir sjálfbæra þróun - en ávinningur af því að umhverfismarkmið náist-" https://www.althingi.is/altext/lagasofn/nuna/2011036.htm Þó lögin/tilskipanirnar séu útataðar af meiningarlausum tískuorðum er ekki hægt að skilja þau sem virkjanabann!

Þessi lög, ættuð frá Evrópusambandinu, þarf að afnema, gömlu íslensku vatnalögin frá 1923 duga með lagfæringum! Þau eru ekki 70 blaðsíðna þvæla eins og EES-tilskipunin (2000/60).

Og framvegis fáum við svo bara EES-hveiti, það er að segja malað í útlöndum og jafnvel bætt með eiturefnum frá akuryrkjunni, bannað að mala hér https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/18/allt_hveiti_er_nu_innflutt/

Ofurflóknar, illskiljanlegar og ónothæfar EES-tilskipanir verða hér að skaðlegum lögum og reglugerðum sem spilla stvinnustarfsemi landsmanna skref fyrir skref: Orkuframleiðslunni, iðnaðinum, bönkunum o.s.frv.


Bloggfærslur 18. janúar 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband