Við styðjum hryðjuverk

nuclear powerplantpxclimateaction-4168906_960_720Úkraínuher reyndi að skjóta sprengju á kjarnorkuverið í Kursk og hefur hvað eftir annað reynt að sprengja kjarnorkuverið i Zaporozhie við Dnéprfljótið. Rússneska hernum hefur hingað til tekist að forða alvarlegum skemmdum. https://www.rt.com/russia/602975-attack-kursk-nuclear-plant/

Sprengjuárásir á kjarnokuver geta komið af stað stjórnlausu útrennsli geislavirkra efna (sbr. Chernobyl í Úkraínu 1986). Rússnesk yfirvöld hafa margsinnis kvartað við Alþjóða kjarnorkustofnunina án árangurs en fulltrúar hennar eru þó núna væntanlegir til Kursk kjarnorkuversins.

Þeir sem reyna að skjóta sprengjum á kjarnorkuver er ekki hægt að kalla annað en hryðjuverkamenn. Athæfi Kænugarðsstjórnarinnar, sem er undir yfirstjórn hernaðaryfirvalda Bandaríkjanna, er orðið mesta vá sem hangir yfir Evrópu og reyndar heimsbyggðinni allri. Ísland getur ekki verið þekkt fyrir að styðja hryðjuverkamenn og á að beita sínu friðarmannorði (er kannski búið að sólunda því?) til að kalla á friðarsamninga.


Bloggfærslur 23. ágúst 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband