Útskúfaðar þjóðir

war-5064697_960_720Norður Kórea og Viet Nam, sem hafa verið útskúfuð í mannsaldra og sætt árásum og manndrápum, hafa nú verið boðin aftur inn í samfélag þjóða. Það gerir Rússland sem hefur stuðning vaxandi fjölda heimsþjóða í baráttu sinni við Bandaríkin sem lögðu þessi lönd í rúst og útilokuðu þau frá umheiminum með aðstoð sinna leppríkja.

Bandaríkin sprengdu Norður Kóreu aftur til steinaldar 1950-1953, ekkert land hefur verið sprengt eins mikið, sem næst allar borgir landsins voru lagðar í rúst. Afskipti Kína og Rússlands urðu svo til þess að gert var vopnahlé. En Bandaríkin og leppar þess hafa haldið Norður Kóreu í höftum og einangrun síðan og rekið áróður gegn landinu. Vestrænir fjölmiðlar eru látnir kalla þjóðina "paría" (ósnertanlega) og landið "útlagaríki". Gleðin var mikil þegar diggustu bandamennirnir, Rússar, komu í heimsókn með stuðning og vinarhug.

VietNam sigraði nýlenduveldið Frakkland 1954 en þá komu bara aðrir stríðsherrar. Bandaríkin hófu brátt manndráp, milljónir voru drepnar áður en Bandaríkin lögðu niður skottið og fóru heim með sína byssumenn. Þá hafði VietNam verið nærri lagt í eyði. Nú hefur Rússland, sem studdi VietNam gegn stríðsherrunum, gert viðskipta- og samstarfssamning við sína fyrrum bandamen, Vietnama.


Bloggfærslur 21. júní 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband