Hernaður Íslands

tank-5125073_960_720Hernaðarstuðningur Íslands kostar þjóðina mannorðið sem vopnlaus friðarþjóð og auk þess viðskiptasambandið við eitt besta viðskiptalandið á lýðveldistímanum. Hernaðarrekstur NATO og ESB gegn rússneskum íbúum Úkraínu og nú Rússlandi sjálfu hófst af uppskálduðu tilefni snemma árs 2014 með sviðsettri uppreisn og vopnuðu valdaráni á vegum ríkisstjórnar Obama og bandamanna. Markmiðið er að taka Úkraínu inn í NATO og ESB. Og ekki síst, egna Rússa til styrjaldar sem fávísir NATO/ESB-forsprakkar halda að hægt sé að vinna!

Sum NATO- og ESB-lönd hafa aukið stríðsæsingarnar og Stoltenberg (framkvæmdastjóri NATO) er einn háværasti stríðsmangarinn. Hann er "hættulegur maður" segir ríkisstjórn Ítalíu. https://ground.news/article/italian-deputy-pm-calls-nato-boss-a-dangerous-man

https://www.youtube.com/watch?v=eptbaN4npaA

Stríðsæsingarnar gegn Rússlandi nú eru álíka tilefnislausar og síðustu heila öldina https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/. Aftur á móti er full ástæða til að óttast hernað NATO- og ESB-landa eins og menn vita í Viet Nam, Írak, Serbíu, Sómalíu, Libíu, Afganistan, Sýrlandi, Jemen, Palestínu----

 


Bloggfærslur 30. maí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband