Útrunninn Zelenski

tank-5125073_960_720Kjörtímabil hans rann út í maí. En gáfnaljósin  á Norðurlöndum bjóða honum samt á montfund þar sem hann getur betlað meiri vopn og pening. Norðurlönd eru öll orðin hjálendur Bandaríkjanna og kjölturakka þeirra í London og Brussel og hlýða þeim í blindni og hefur verið talin trú um að þau eigi að "styðja Úkraínu"!

Það er nærri búið að tæma vopnageymslur ESB/NATO og Zelenski hefur lítið gagn af Norðurlandavopnum, Rússarnir eru fljótir að eyða þeim.

Eins og glöggir vita er svo kallaður "stuðningur við Úkraínu" stuðningur við landvinningahernað NATO og ESB. Nýnasistarnir í Úkraínu og hermenn frá NATO/ESB eru meira að segja farnir að ráðst inn í Rússland.

Norðurlandaráð ætlar að fjalla um öryggi á norðurslóð en Rússland á og stjórnar stærsta hlutanum af þeim slóðum. Gáfnaljós Norðurlanda hafa ekki vit á að fá Rússa til viðtals um norðurslóðir, þeir trúa enn lygaþvættingnum  í Churchill og Truman um hættulegu Rússana.

Norðurlandaráð var lengi fylleríissamkoma norðurlandakrata og ber enn dám af góðlátlegu tilgangsleysi þeirra hittinga. Lönd heimsins horfa nú á Norðurlönd með undrun og eru farin að stilla saman strengi gegn manndrápum og rupli á vegum NATO- og ESB-landa, þessa stundina í Úkraínu og Palestínu. https://brics-russia2024.ru/en/


Bloggfærslur 28. október 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband