Peningar í dráp, ekki í hjálp

fallensoldierspexels-photo-10550031Stríðsríkin, Bandaríkin og leppar þeirra sem hlaupa upp til handa og fóta þegar Washington bendir fingri, ætla að hætta að styrkja eina af vitlegri stofnunum Sameinuðu þjóðanna, UNRWA sem styrkir umsetna og kúgaða þjóð Palestínu. UNRWA er kennt um að vinna með hryðjuverkamönnum sem þarf að sannreyna og deila út refsingum til þeirra sem hafa tekið þátt í því með öðru móti en meiri níðingsverkum gegn Palestínufólki.

Alltaf eru til nógir peningar í dráp. Ísraelsher fær vopn til þess að drepa Palestínufólk. Og þeirra hermenn og Bandarkjanna og Breta fá nóga peninga til þess að sprengja í Mið-Austurlöndum. Hamash og fleiri á svæðinu fá peninga frá sínum  styrktaraðilum í sprengjur og dráp á Ísraelum og bandarískum hersetuliðum.

Og manndrápaverktakar NATO og ESB í Úkraínu fá stjarnfræðilega styrki til þess að drepa Rússa og Rússar setja mikið fé í að drepa hermenn þeirra.

Vítahringir gagnkvæmra manndrápa eru að verða of stórir.


Bloggfærslur 28. janúar 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband