Græni dauðinn

icebergs-932963_960_720Nærri 5000 manns dóu úr kulda í Bretlandi síðasta vetur. https://morningstaronline.co.uk/article/b/nearly-5000-people-britain-died-last-year-due-cold-damp-homes-analysis-finds

"Græna orkan" sem hin "grænu" stjórnvöld Bertlands leyfa almenningi náðursamlegast að nota er of dýr, venjulegt fólk hefur ekki efni á að hafa hlýtt heima hjá sér. Sami vandi er í Þýskalandi og víðar í ESB þar sem græningjar hafa áhrif og eru komnir vel á veg með eyðileggja orkukerfið með vindmyllum og sólpanelum. Almenningur mótmælir grænu vitfirringunni í kröfugöngum og bændur drátarvélalestum.

Kuldinn  í Bandaríkjunum leiðir nú fjölda fólks til dauða. https://www.nbcnews.com/news/us-news/almost-50-dead-95-million-winter-weather-alerts-arctic-cold-blankets-n-rcna134699

https://www.nytimes.com/2024/01/21/us/deaths-cold-storms-ice-snow-freeze.html

Sama þróun er í Bandaríkjunum og Evrópu, græna hugmyndafræðin er að eyðileggja orkukerfin. Margfalt fleiri deyja úr kulda en hita á heimsvísu. https://lomborg.com/heresy-heat-and-cold-deaths

Veðurstofa ESB sagði nýlega: "Síðasta ár var það hlýjasta frá upphafi", sama árlega fullyrðingin og síðustu áratugina. Margar stofnanir á heimsvísu senda frá sér ómarktækar staðhæfingar um loftslag: IPCC og WMO (Sameinuðu þjóðirnar),  NOAA og NASA (Bandaríkin), Met Office og CRU (England) Copernikus (ESB) og fleiri, þær eiga yfirleitt sögu sína að rekja til veðurfræði sem er allt önnur vísindi en loftslagsfræði. Lesendur verða að vara sig á að taka staðhæfingar þeirra alvarlega.

Loftslag Jarðar fer nú kólnandi (nema í stækkandi risaborgum), síðasta ár var þriðja kaldasta á 21. öld í Reykjavík, Akureyri og Kirkjubæjarklaustri (Ísland er á Jörðinni þó skrumarar hafi reynt að véfengja loftslagsmælingar hér). Hitinn hefur farið lækkandi í 20 ár eftir að hafa farið hækkandi 20 árin þar á undan. En það heldur áfram að hitna undir loftslagsskrumurunum.

 

 

 


Bloggfærslur 24. janúar 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband