Þar fór hreinlætið
19.7.2023 | 13:10
Hreinlætið er nú að hverfa í ginið á Evrópusambandinu sem fyrirskipar flokkun heimilissorps. Allt í samræmi við aðstæður í ESB, þéttbýli og fátækt þar í löndum.
Við EES-undirsátar höfum nú fengið yfir okkur "hringrásarhagkerfi", eitt vitlausasta stjórnkerfi sem ESB/EES hefur ungað út og Alþingi stimplað í lög https://www.althingi.is/altext/stjt/2021.103.html
Kámugar hendur setja nú kámugar umbúðir í kámuga dalla sem þvælast fyrir heimilismönum. Eldhúsið löðrandi eftir leka pappírspoka með matarleifum. Lyktin berst um allt hús. Flugurnar eru komnar. Hreinlætið er fyrir bí. Og hólfaskiptu nýju sorptunnurnar alltaf fullar. Og borgin tottar meiri peninga af okkur.
Plast-, pappírs-, pappa- og álumbúðir eru forsenda góðs nútíma hreinlætis. Rétta og umhverfisvænsta leiðin til að farga úrgangi frá þessari notkun er vel skipulögð urðun eða brennsla. Íslendingar senda út mikið af sorpi til eyðingar í öðrum löndum og borga fúlgur fjár þó hægt væri að urða eða brenna því hér.https://www.frjalstland.is/2022/11/27/utlend-sorphirda/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)