Breska ógnin
21.5.2023 | 14:31
Breska heimsveldið og dræsur þess hafa herjað á heimsbyggðina í hálft árþúsund. Frá því Ísland varð lýðveldi hefur Bretland níu sinnum reynt að koma Íslandi á kaldan klaka, síðast með því að loka bankakerfinu og reyna að setja ríkissjóð i þrot.
Bretar eru stríðsþjóð og alltaf til í stríð, þegar Ameríka fer í stríð fá þeir oft að vera með af því að þeir eru í NATO þó þeir geri lítið gagn en alltaf til i að hæla sér ef Kanarnir eða aðrir bandamenn þeirra vinna. Reyndar eru líka okkar hernaðarsinnuðu frændur Danir og Norðmenn "viljugar þjóðir" í manndráp og hryðjuverk Kananna og NATO/ESB, hvort sem er geislavirk árás á Fallujah eða sprengingar á gasleiðslum Rússa.
Íslendingar kynntust gáfnafari breskra herstjóra í hernámi Íslands 1940. Það virðist ekki hafa batnað, nú hafa þeir sent hryðjuverkastjórninni í Kænugarði fallbyssuskot með geislavirku úraníum. Eins og við var að búast sprengdi rússneski herinn geymsluna með úranskotunum og öðru stríðsdóti frá NATO/ESB í loft upp.
Geislavirkt ský ferðast nú yfir ESB/NATO-lönd og stefnir á Bretland, breska ógnin heimsækir þá sjálfa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2023 kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)