Hjá ný-nasistum

vetlingarcold-70340_960_720Okkar ráðherrar fara til ný-nasistanna í Kænugarði með fleiri ullarvetlinga til að innlima Úkraínu í ESB og NATO.

Og undirbúa sýningu leikarans fræga Zelensky hér í mai sem er til þess að koma ESBskotunum til að vola og búa til meiri lygar handa falsfréttamiðlum Vesturlanda. Það verður nefnilega fundur þeirrar háu hlálegu samkundu "Evrópuráðsins" hér í Reykjavík í maí, meiningarlaus samkoma ómarktækra vínlepjandi ESBskota, stofnuð til þess að koma í veg fyrir fleiri Evrópustríð sem stríðsþjóðir í ESB hefja venjulega eins og nú gegn Rússlandi. Stærsta og öflugasta þjóð Evrópu, Rússar, eru útilokaðir frá þáttöku sem þýðir að samkoman í Reykjavík verður árangurslaus leiksýning ESB.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/03/13/katrin_og_thordis_a_leid_til_ukrainu/

Ég legg til að Katrín og Þórdís fari til Moskvu þar sem Ísland hefur alltaf átt vini og bjóði Rússum á samkunduna í Reykjavík í mai, allavega að fara Gullna hringinn með góðri rútu ef ESBskotarnir fara að steita sig. Vegna hamfarahlýnunarinnar þurfa Rússarnir líka að fá vetlinga og sokka til að verja Rússana í Donbas fyrir manndrápum ESB og NATO. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Friðrik Daníelsson

 


Bloggfærslur 13. mars 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband