Grínleikarinn

clown-6926214_960_720Zelenskyy í Úkraínu (sem ESB og NATO kalla forseta en er hlaupatík þeirra við að bera út áróður) kallar Rússa blóðþyrst úrþvætti og segir þá hafa drepið 23 saklausa borgara.

Það rétta er að þeir drepnu voru farþegar í bílalest sem var að reyna að flýja yfirráðasvæði Úkraínustjórnar og inná yfirráðasvæði Rússa í Zaporozhie. Hryðjuverkamenn Úkraínustjórnar réðust á bílalestina og drápu hálfan þriðja tug fullorðinna og barna og særðu enn fleiri. Þeir sem reyna að flýja frá svæðum Kænugarðsstjórnarinnar inn á svæði Rússa sæta árásum en þó hafa þegar 3 milljónir flóttamanna náð að komast til Rússlands. Dráp Úkraínustjórnar á rússneskum borgurum Ukraínu hafa nú staðið í 9 ár og kostað tugþúsundir mannslífa.

En nú hafa Rússar aflað svæðum þeirra langþráðs sjálfstæðis og heita að beita vörnum gegn drápsmönnum leppstjórnarinnar í Kænugarði.

Fjölmiðlar ESB- og NATO-landa útvarpa blygðunarlaust lygum um Úkraínustríðið, okkar fjölmiðlar gleypa oft við þeim, undantekning er Moggi sem oft lætur hlutlausa umfjöllun fylgja falsfréttunum frá Englandi, Ameríku og ESB.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/09/30/kallar_russa_blodthyrst_urthvaetti/


Bloggfærslur 30. september 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband