Lísa kom of seint
23.10.2022 | 13:10
Liz Truss reyndi að koma Bretum á rétta braut og setti í gang olíu- og gasvinnslu aftur til þess að fá orkumál Bretlands upp úr feni loftslagssvindlsins sem herjað hefur á Breta í fjölda ára. Skemmdin á orkukerfinu er orðin svo alvarleg að flestir í landinu hafa ekki efni á að kaupa orku. En braskarar í vindmyllurekstri skara eld að eigin köku þó þeir geti ekki haldið uppi eðlilegri orkuafhendingu, öryggið er farið út í veður og vind og almenningur orðinn fastur í lífskjarakreppu sem er afleiðing orkukreppunnar.
Liz er skárri stjórnmálamaður en fyrirrennarar hennar þó hún sé stríðsæsingamaður eins og þeir og til í að henda kjarnorkusprengjum á Rússa sem björguðu Bretum frá að tala Þýsku.
En það er of seint í rassinn gripið að bjarga orkukerfi Breta. Það tekur árafjöld að reisa það úr rústum umhverfishjátrúar og koma í gang hagkvæmum orkuverum, og gas- og olíuvinnslu, í staðinn fyrir þau sem búið er að loka í nafni "kolefnishlutleysis" eða annarra bábilja frá loftslagsskrumurum. Lísa var of sein. Hún var rekin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)