Hamfarahlýnun með hafís
19.4.2021 | 12:29
Landsins forni fjandi nálgast landið. Ríkisstjórnin ætlar að bregðast skörulega við með milljarðatugum af skattfé, og sýna ESB hvað við getum, og setja lög um kolefnishlutleysi, "til að halda aftur af hamfarahlýnun-", og lög um vindmyllur
ESB þyrfti líka að gefa út tilskipun um eldgos, Fagradalsfjall framleiðir meiri koltvísýring (6kt/dag) en eldsneytisbrennsla Íslendinga.
Falsspámenn hafa spáð hamfarahlýnun í aldarþriðjung en það var 2011 sem við flæktumst að óþörfu í hamfarahlýnun ESB. Síðasta áreiðanlega spáin frá Al Gore, 2009, var að Norður-Íshafið yrði íslaust 2013. En hafísinn gegnir ekki Nóbelsverðlaunahöfum, útbreiðslan er meiri nú (í mars) en fyrir 15 árum. Loftslagið breytist stöðugt.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)