Loftslagsmál ekki um loftslag

Okkar forsætisráðherra ætlar nú að setja Íslandi ennþá háleitari markmið í "loftslagsmálum" og monta sig með þekktum loftslagsskrumurum, frönskum, breskum og Sameinuðu þjóða skriffinnum.

climate-hustle-2-postponed_1372648.jpgMeira að segja þeir sem lágmarks þekkingu hafa vita að "loftslagsmál" skrumaranna hafa ekkert með loftslag að gera heldur gróðafíkn og valdagræðgi manna sem nota fávísi og trúgirni fólks til að komast yfir peninga og völd. Ríkisstjórn Íslands lætur þvæla landsmönnum í eina botnlausa og gagnslausa sóunina eftir aðra vegna ímyndaðrar loftslagsvár.

Lýðskrumararnir hafa spáð hættulegri hlýnun í 34 ár, allar þeirra spár hafa reynst falsspár. "Loftslagsváin hefur skapað neyðarástand" segir forsætisráðherra okkar (Mbl 10.12.2020). Raunin er að það er engin loftslagsvá og ekkert neyðarástand vegna loftslagsbreytinga heldur rangfærslur og hræðsluáróður.

Utanríkissráðherra okkar segir "loftslagsbreytingar af mannavöldum eru veruleiki sem við verðum að horfast í augu við" (Fréttabl. 10.12.2020). Veruleikinn er að mannkyn hefur hverfandi áhrif á loftslag, það eru öfl sterkari en bæði ESB og skriffinnar Sameinuðu þjóðanna sem stjórna því.

Græna glýjan

Michael Moore afhjúpar grænu orkuna

Loftslagsblekkingar ESB


Íslensk kolefnisspora-pólitík

Forsætisráðherra birtir grein i Morgunblaðinu í dag um stefnu Íslands í loftlagsmálum, eða öllu heldur um kolefnisspor landsins og hvernig má draga úr því fram til 2040. 

iceland-planet-earth-highlighted-red-d-illustration-detailed-surface-elements-image-furnished-nasa-94668527.jpgAllt eru þetta fögur fyrirheit og búið er að stofna til stofnanna og nefnda til að framkvæma áætlun Íslands. M.a. Loftlagsráð, Loftlagssjóð og í kringum þessa áætlun hafa orðið til ýmis verkefni í skógrækt og "endurheimt votlendis" eins og það er orðað.

Áætlunin um kolefnisjöfnun Íslands 2040 minnir svolítið á áætlun stjórnvalda um "Eiturlyfjalaust Ísland árið 2000". 

Frjálst land ætlar að kafa svolítið niður í Aðgerðaráætlun Íslands í loftlagsmálum á næstunni.   


Bloggfærslur 10. desember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband