Færsluflokkur: Umhverfismál

Niðurdæling dýr mistök

gufaForráðamenn Orkuveitunnar okkar halda að þeir geti grætt milljarða á að dæla reyk frá Evrópusambandinu niður í hraunið. Þeir þurfa að vita að niðurdæling/koltvísýringsförgun í jörð hefur verið reynd víða í áratugi en yfirleitt farið í vaskinn.

Nýlegir kollhnísar:

-Petra Nova í  Texas átti að vísa veginn en hefur verið lokað

-San Juan í Nýju Mexíkó er á sömu leið

-Orkuráðuneyti Bandaríkjanna eyddi 6,9 milljörðum dala í þróun

-Aðeins 4% áætlaðra verkefna 2014-2026 komust í framkvæmd

-Af 13 stórverkefnum vestra fóru 10 í vaskinn.

https://www.foodandwaterwatch.org/2022/09/27/carbon-capture-failures/

Förgun koltvísýrings í berg er mjög orkufrek og hefur þurft að reisa ný orkuver til þess að knýja niðurdælinguna. Vestra hefur það valdið meiri koltísýringslosun en bindingu þar eð mörg orkuveranna eru brennslisknúin!

Leka- og mengunarhætturnar eru margar en árangurinn er hverfandi enda Jörðin sjálf að losa (og binda) heilt teratonn á ári. "Carbon capture"-gæluverkefni OR yrði dýr kollhnís á kostnað okkar eigenda almannafyrirtækisins OR. Ef þeir ætla að treysta á "losunarkvótakerfi" ESB til að borga eru þeir á hálum ís, ETS-kerfið er ósjálfbært, byggt á blekkingum og hrjáð af svindli og á leið að flosna upp enda mikið af fyrirtækjum ESB að nálgast "grænt" og kolefnislaust gjaldþrot. https://thebulletin.org/2022/09/plagued-by-failures-carbon-capture-is-no-climate-solution/

Orkuveitan hefur lengi dælt niður jarðvarmagasi til þess að losna við hverafýluna , brennisteinsvetnið, það er vitleg aðgerð sem hefur gengið vel enda brennisteinsvetnið hvarfgjarnt og binst vel við hraunlögin.

 


Danskur vindur

oldwindmillpexels-photo-6559426Nú stendur til að auka "samvinnu" Dana og Íslendinga í "grænum verkefnum" og orkuöflun. Hvergi í heimi er orka dýrari og óhagkvæmari en í Danmörku enda Danir lengi virkir þátttakendur í "loftslagsmálum"!

Danska ríkið á meirihluta í stærsta sjóvindmyllufyrirtæki heims, Örsted, stærsti vindmylluframleiðandinn er líka Danskur, Vestas. Risaverkefni Örsted hafa verið að stöðvast eitt af öðru þegar menn hafa áttað sig á hvert stefndi (vindmyllur ganga ekki fyrir vindi heldur ríkisstyrkjum!) https://www.theguardian.com/environment/2023/nov/01/rsted-cancels-two-us-offshore-windfarm-projects-at-33bn-cost

Í Svíþjóð keyrði stórt "rafeldsneytisverkefni" Örsted í strand í sumar. Þar átti að framleiða "rafeldsneyti", tréspíra úr rafgreiningarvetni og koltvísýring eins og í Carbon Recycling í Svartsengi. https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/ Það var auðvitað allt byggt á óskhyggju, það þarf tvöfalt meiri orku til að framleiða bara vetnið en sem fæst svo úr spíranum. Og ekki bætir úr skák að vindmyllurafmagnið í vetnisframleiðsluna er of dýrt og stopult. https://www.spglobal.com/commodityinsights/en/market-insights/latest-news/energy-transition/081524-orsted-scraps-swedish-flagshipone-e-methanol-project-under-development

Það er ekkert vitlaust að vinna með Dönum, bara ekki í orkumálum eða "grænum verkefnum"! https://www.frjalstland.is/2024/10/13/danskur-vindur/

Friðrik Daníelsson, efnaverkfræðingur


Meiri hamfarahlýnun!

icebergs-932963_960_720Síðasta sumar var það kaldasta síðan 1992 í Reykjavík. (Mbl 10.10.2024). Loftslagslygasmiðjurnar (SÞ-UNEP, -IPCC, -WMO, NOAA, NASA-Giss, EU-Copernicus, CRU ofl.) halda sleitulaust áfram að gefa út falskar fullyrðingar um loftslag "-síðasta ár var það hlýjasta frá upphafi mælinga-"! hefur verið endurtekið í aldarþriðjung.

Kuldaskeiðið 1965-1995 var tími áfalla, fiskileysis, auðlindaafsals, kalinna túna, svartsýni og framtaksleysis, stjórnunarmistaka og loks sjálfstæðismissis 1993. Þegar svo fór að hlýna undir aldarlokin tók velsældin kipp upp á við. En loftslagskólnunin kemur alltaf aftur (eins og 1150 og 1965) og er orðin greinileg síðasta áratuginn með minni fiskafla og uppskerubresti þó vöxtur koltvísýringsins í loftinu gefi betri uppskeru sumstaðar ennþá.  Útbreiðsla hausthafíssins komst ekki niðurfyrir 4 milljónir ferkílómetra í ár eins og árið 2012. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf


Kjarnorkuver í hættu

chernobylpexels-photo-13726104Njósnarar Breta og Bandaríkjanna hjálpuðu Úkraínustjórn að skipuleggja eyðileggingu kjarnrokuversins í Kúrsk segir njósnastjóri Rússlands. https://www.rt.com/russia/605375-kursk-nuclear-threat-svr/

Úkraínuher réðst inn í Kúrsk hérað 6 ágúst sl. en var stöðvaður nálægt landamærunum af rússneska hernum. Úkraínuher (það er drápssveitir á vegum NATO og ESB) halda áfram að senda sprengjuskeyti á Kursk kjarnorkuverið sem Rússlandsher hefur hingað til skotið niður. Kænugarðsstjórnin reynir stöðugt að sprengja Zaporozhie kjarnorkuverið sem stendur við stórfljótið Dnépr.

Það er orðin brýn nauðsyn fyrir nágrannalönd Úkraínu, og reyndar heimsbyggðina, að láta hryðjuverkastjórnina í Kænugarði hætta hernaði og hryðjuverkunum áður en nýtt Chernobylslys verður.


Skilurðu sænsku?

sweden-916799_640Svíar frændur hafa alla tíð átt mikla hugsuði þó okkur finnist þeim hafi hnignað niður í skrílsmenningu og stríðsæsingar Vesturlanda upp á síðkastið. En það er eins með gáfumennina í Svíþjóð og víðar hér á Vesturlöndum, þeir eru margir útilokaðir frá einokandi falsfréttamiðlunum og ekki teknir í umræðuna.

En hlustaðu á Staffan Mörner útskýra að loftslagsstjórnmál eru að leiða til meiri áfalla fyrir mannkyn en hinar ætluðu loftslagsbreytingar geta nokkru sinni komið af stað. https://swebbtv.se/w/gvPBRY5zdn9acZfcs6NtXe

Loftslagsbreytingarnar eru stöðugt í gangi en mannkyn hefur hverfandi áhrif á þær. Hlýjasta tímabilið frá því Litlu Ísöldinni lauk var um 1940, síðan hefur kólnað. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf


Eins og loftsteinn

rússneskur ísbrjóturpexels-photo-10996595-"Mannkynið er eins og loftsteinninn sem útrýmdi risaeðlunum - að útrýma sjálfu sér með notkun jarðefnaeldsneytis-" segir Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðuþjóðanna sem er orðinn einn mesti heimsendaspámaður allra tíma og líkingamálið í skáldskap hans orðið stórbrotið. https://www.wionews.com/world/un-chief-likens-humans-to-meteor-that-killed-dinosaurs-calls-fossil-fuel-sector-godfathers-of-climate-chaos-729144

Sameinuðuþjóðirnar hafa náð undir sinn hatt þekktum ruslvísindastofnunum, þar á meðal IPCC, WMO, UNEP og fleirum. Stundum heyrist frá litu kórfélögunum, RÚV sagði frá einum sem m.a. sagði að Grænlandsjökull væri í hættu og sömuleiðis norðuskautsísinn.

En við ræflarnir hér uppi á Klakanum látum allar lygar og svindl frá loddurunum í upphituðum fílabeinsturnum yfir okkur ganga meðan veturnir verða kaldari, köld vorin renna saman við veturinn og sumrin koma í viku í ágúst. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/07/climate-history-of-Iceland.pdf

Kal í túnum og uppskerubrestur eins og á kaldasta ári 20 aldar, 1979, spillir landbúnaðinum. Og fallegu litlu fuglarnir, sem komu fagnandi frá Bretlandseyjum um daginn, deyja úr kulda og hungri. Og ferðamennirnir eru ekki lengur spenntir fyrir að koma.

Norð-austurleiðin gegnum Norðuríshaf Rússlands var sögð mundi opnast í byrjun aldarinnar vegna bráðnunar íssins. En þar er nú meiri ís en verið hefur lengi vegna mikillar kólnunar loftslags. En ísbrjótar Rússa eru orðnir öflugir og fara með skipalestir í gegnum ísinn. Heimsvaldadraugar í NATO hafa reynt að spilla því.


Kísilverksmiðja í gang

                                                                        Kísilmálmverksmiðjunni Helguvík var á landsvirkjunimagessínum tíma lokað af Umhverfisstofnun, kvartanir bárust frá einhverjum Keflvíkingum sem fundu lykt ekki síst þegar vindur stóð á haf út og meint mengun hefði farið þangað! Lokun verksmiðjunnar var valdníðlsa, ekki var sannað að hún hefði farið yfir sett mengunarmörk.

EES-regluverkið um mengun frá iðnaði er flókið og óhnitmiðað en túlkað af geðþótta út fyrir ystu æsar af íslenskum stofnunum. Það hamlar iðnaðaruppbyggingu en í kísilmálmverksmiðjur er settur mengunarhreinsibúnaður sem tekur obbann af menguninni.

Mogginn segir að einhver hafi áhuga á að koma hinni verklausu kísilverksmiðju í gang (Mbl 18.4.2024) en hún er hönnuð og tækjavædd af einhverju stærsta fyrirtæki heims í tækni kísilmálmframleiðslu. Spurningin er hvort hægt verður að setja hana í gang meðan íslenska stofnanafarganið starfar eftir nöldurskjóðum og EES/ESB-regluverkinu sem þegar hefur flæmt stóran hluta af hráefnaiðnaði V-Evrópu burt.

Svo er það annað mál en farið er að eyða raforku þjóðarinnar í óþarfa í nafni orkuskipta og klefnishlutleysis í stað þess að nota orkuna til verðmætasköpunar. Meðal annarra heimskustrika fá menn nú umhverfisspillandi rafhlöðubíla með styrk frá skattgreiðendum meðan umhverfisvænstu bílarnir, sem nota ódýra, hagkvæma og umhverfisvæna orku bensíns og díselolíu, eru seldir með okursköttum og eldsneytið er selt á tvöföldu verði.


Vindmyllur ekki lengur í tísku

windmill-4550711_640

Andstaða gegn vind- og sólorkuverum er alþjóðleg og vaxandi, orkuverin eru óhagkvæm og byrði á sínum samfélögum þó umhverfisprelátar haldi öðru fram. Þau valda hljóðmengun, fuglameiðslum, mengunarslysum og eitruðum úrgangi og fleiri umhverfisspjöllum og valda oft rafmagnsleysi. Aðild Íslands að EES opnar á að fyrirtæki í Evrópusambandinu og þeirra umbar hér byggi og reki vindmylluver á Íslandi og fái styrki af almannafé.

Um allan heim er nú verið að hafna vind-og sólorkuverum.

Í Englandi hefur svo mörgum sólorkuverum verið hafnað að erfitt er að halda reiður á. Svæðisstjórnir í Cambridgeshire, Holbeach, Kent, Herefordshire og Coventry hafa hafnað sólorkuverum.

Í Bandaríkjunum hefur amk. 639 vind- og sólorkuverum verið hafnað síðan 2015.

Þeir einu sem vilja vindmyllur og sólarpanela eru umhverfistrúðarnir og fyrirtækin sem fá ríflega almannastyrki til að byggja og reka "grænu orkuverin"

https://www.frjalstland.is/2024/04/16/vaxandi-andstada-gegn-vindmyllum-og-solorkuverum/

 


Sjálfbærir bændur

berishvili Fépexels-photo-1574843Nú á að segja bændum hvernig þeir eiga að búa sjálfbært samkvæmt nýjustu tísku, vísað er í ýmsar spilltar margþjóðastofnanir sérstaklega þær sem þekktar eru af lélegum vísindum s.s. mokstri ofaní skurði.

https://samradapi.island.is/api/Documents/1097760b-52b5-ee11-9bc0-005056bcce7e (Sjá einnig Bændablaðið 7.3.2024, og https://www.bbl.is/skodun/sjalfbaer-landnyting-og-vinna-vid-drog-ad-reglugerd)

Sjálfskipaðir beturvitar hafa reynt að útrýma kindunum og kennt þeim um eyðimerkur landsins sem steingerfingafræðingar og fleiri vísindamenn hafa sannreynt að stafa aðallega af kulda og eldgosum.

Frjálsir íslenskir bændur komu með kindurnar sínar fyrir 1150 árum og gáfu þeim frelsi til þess að gefa af sér hollt kjöt og góða ull. Bændurnir hafa haldið landinu í byggð með sjálfbærum búskap síðan, þeir vita meira um sjálfbærni en skriffinnarnir hjá stjórnvaldinu.

Í Evrópusambandinu og fleiri skriffinnskulöndum eiga bændur nú að vera svo sjálfbærir að þeir geta ekki framleitt mat lengur en nota dráttarvélarnar til þess að fara inn í borgina og flauta á ráðamenn https://www.american.edu/sis/news/20240305-farmer-protets-take-root-in-europe-and-beyond.cfm

https://www.theguardian.com/environment/2024/feb/10/theyre-drowning-us-in-regulations-how-europes-furious-farmers-took-on-brussels-and-won

https://www.frjalstland.is/2024/02/12/graena-bol-landbunadar-evropusambandsins/


Vindmyllur slegnar af

windmilldeathgrulla-montes-cierzoVindmyllur ganga ekki fyrir vindi heldur ríkisstyrkjum! Þær eru lélegar orkuvélar og spilla orkukerfinu. Skattgreiðendur borga.

En samt eru fyrirtækin sem framleiða rellurnar og reka vindmyllugarðana að gefast upp. Þegar hefur verið hætt við risa-vindmyllugarða sumra öflugustu fyrirtækjanna í Ameríku og Evrópu. Fyrirtækin sáu fram á stórtap. Íbúum svæðanna er létt, þeir losna við fuglagildrurnar.

Enn hér á Klakanum eru loftkennd grænfyrirtæki ættuð frá Evrópusambandinu og jafnvel Noregi, og þeirra umbar hér, í óða önn að reyna að hola niður vindmyllum í skjóli EES-tilskipana um "græna orku". Sveitastjórnarmenn og landeigendur eru lognir upp úr skónum og stjórnvöld hafa lítið að segja um málið vegna EES-samningsins sem gefur grænt ljós og opnar ríkissjóð fyrir grænu braskarana og þeirra relluverk.

Þeir einu sem geta stöðvað vindmylluvitfirringuna eru íbúar svæðanna þar sem setja á rellurnar upp. Stjórnvöld hafa sýnt sig að geta það ekki, dæmin frá Danmörku, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi sýna það.

En nú þegar loftslagssvindlið er smám saman að afhjúpast þora fleiri að láta skynsemi og raunsæi ráða frekar en tísku umhverfiskirkjunnar. Helstu fyrirtækin í greininni, bæði rekendur vindmyllugarðanna og framleiðendur vindmyllanna, afskrifa nú og hætta við einn vindmyllugarðinn af öðrum. Og fara á hausinn eða skríða í fang skattgreiðenda sem oft eru með lélga fulltrúa sem blæða stórfé í "græna" bölið og framlengja vitfirringuna. Það er stærra kolefnisspor eftir vindmylluframleiðsluna en það sem myllan minnkar á sínum rekstrartíma svo lokun mylluverksmiðjanna er góð fyrir kolefnissporið þó loftslagið sé ekkert betur sett.

https://www.theguardian.com/business/2024/feb/07/danish-windfarm-firm-orsted-jobs-dividend-north-sea

https://www.frjalstland.is/2021/10/08/vindmyllur-og-orkukreppan/


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband