Þjófaflokkurinn G7
13.6.2024 | 15:40
Nú hittast G7-iðnríkin, þ.e. Bandaríkin og þeirra klapplið, þó þau séu ekki lengur flokkur 7 stærstu iðnríkja heims, sífelt fleiri ríki fara fram úr þeim. Aðalumræðuefnið er að stela peningum frá Rússum https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/13/fagnar_sogulegu_lani_til_ukrainu/
til þess að fjármagna stríðið gegn Rússum sem nú er komið á 11. ár og gleypir síffellt hærri fúlgur þar eð NATO- og ESB-lönd halda áfram að útvíkka stríðið.https://apnews.com/article/italy-g7-summit-ukraine-biden-pope-a7771f3f8932653b44e21217a121854b
Þau senda síffelt meira af vopum, langdrægari sprengjum, "ráðgjöfum" og hermönnum. Og nú láta þau aftur nasistaflokka Úkraínu fá sprengjur til að skjóta yfir landamæri Rússlands. https://www.youtube.com/watch?v=R6JxJARC_jk
Mistakaforsetinn í Hvíta húsinu er að koma af stað heimsstyrjöld með leppana í Evrópusambandinu í fremstu víglínu. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/13/nato_med_300_000_hermenn_i_vidbragdsstodu/ Leiðtogar þess eru margir komnir með alvarlegt stríðsgeðrof sem teygir sig hingað og hefur slæmar afleiðingar fyrir Ísland. https://www.aljazeera.com/news/2024/6/11/europe-preparing-for-war-as-ukraine-conflict-looms-large-report-finds
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað eru Bandaríkin að gera í Úkraínu?
11.6.2024 | 13:16
Af hverju eyða moðskuldug Bandaríkin stjarnfræðilegum upphæðum í hernaðarrekstur í Úkraínu? Eru þau að verja frelsi, lýðræði eða sjálfstæði landsins?
Annað slagið koma ráðamenn fram og afhjúpa sannleikann, viljandi eða óviljandi. Einn helsti leiðtoginn á Bandaríkjaþingi fer ekki í grafgötur með ástæður hernaðarins í Úkraínu:
"-They are sitting on 10 to $12 trillion of critical minerals in Ukraine - they are sitting on a gold mine-" = Úkraínumenn sitja á 10-12 trilljóna dollara virði af mikilvægum málmum - þeir sitja á gullnámu-" (Lindsey Graham á CBS) https://www.cbsnews.com/news/lindsey-graham-senator-south-carolina-face-the-nation-transcript-06-09-2024/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stóri bróðir er óskeikull
9.6.2024 | 14:16
Nú hefur Alþingi framið enn eitt valdaafsalið til Evrópusambandsins og sett bann á að íslensk stjórnvöld stjórni:
-"Raforkueftirlitið er sjálfstætt" - "og getur ráðherra eða orkumálastjóri ekki gefið fyrirmæli (um eftirlitið) - Raforkueftirlitið skal hafa samráð við Samkeppniseftirlitið-" https://www.althingi.is/altext/154/s/1180.html
Alþingi braut stjórnarskrána 2017 með bankalögum stórríkis ESB:
-"Tilgangur laga þessara er að lögfesta evrópskt (les ESB) eftirlitskerfi á fjármálamarkaði- -Ákvarðanir ESA samkvæmt lögum þessum eru aðfarahæfar sem og dómar og úrskurðir EFTA-dómstólsins"- https://www.althingi.is/lagas/nuna/2017024.html
Fyrsta stjórnarskrárbrot Alþingis eftir EES-samþykktina, 1993, var samkeppnislögin frá ESB. Þau og Samkeppniseftirlitið standa í vegi fyrir hagræðingu fyrirtækja í landinu. https://www.althingi.is/altext/stjt/2005.044.html
https://www.frjalstland.is/2021/04/01/samkeppniseftirlitid-skadar-samkeppnishaefnina/
Nýleg persónuverndarlög, sem ESB setti til að þrengja að stóru amerísku netfyrirtækjunum, voru sett í andstöðu við landslög sem og aðila sem málið varðaði. https://www.frjalstland.is/personuverndarlog-esb/
Úr texta frumvarpsins:
- Stofnunin "Persónuvernd - tekur ekki við fyrirmælum frá stjórnvöldum- Ákvörðun Persónuverndar - verður ekki skotið til annarra (Íslenskra) stjórnvalda - Evrópska Persónuverndarráðið - stofnun á vegum ESB - skal hafa réttarstöðu lögaðila-" http://www.efta.int/sites/default/files/media/documents/legal-texts/eea/other-legal-documents/translated-acts/icelandic/i32016R0679.pdf
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eins og loftsteinn
6.6.2024 | 15:16
-"Mannkynið er eins og loftsteinninn sem útrýmdi risaeðlunum - að útrýma sjálfu sér með notkun jarðefnaeldsneytis-" segir Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðuþjóðanna sem er orðinn einn mesti heimsendaspámaður allra tíma og líkingamálið í skáldskap hans orðið stórbrotið. https://www.wionews.com/world/un-chief-likens-humans-to-meteor-that-killed-dinosaurs-calls-fossil-fuel-sector-godfathers-of-climate-chaos-729144
Sameinuðuþjóðirnar hafa náð undir sinn hatt þekktum ruslvísindastofnunum, þar á meðal IPCC, WMO, UNEP og fleirum. Stundum heyrist frá litu kórfélögunum, RÚV sagði frá einum sem m.a. sagði að Grænlandsjökull væri í hættu og sömuleiðis norðuskautsísinn.
En við ræflarnir hér uppi á Klakanum látum allar lygar og svindl frá loddurunum í upphituðum fílabeinsturnum yfir okkur ganga meðan veturnir verða kaldari, köld vorin renna saman við veturinn og sumrin koma í viku í ágúst. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/07/climate-history-of-Iceland.pdf
Kal í túnum og uppskerubrestur eins og á kaldasta ári 20 aldar, 1979, spillir landbúnaðinum. Og fallegu litlu fuglarnir, sem komu fagnandi frá Bretlandseyjum um daginn, deyja úr kulda og hungri. Og ferðamennirnir eru ekki lengur spenntir fyrir að koma.
Norð-austurleiðin gegnum Norðuríshaf Rússlands var sögð mundi opnast í byrjun aldarinnar vegna bráðnunar íssins. En þar er nú meiri ís en verið hefur lengi vegna mikillar kólnunar loftslags. En ísbrjótar Rússa eru orðnir öflugir og fara með skipalestir í gegnum ísinn. Heimsvaldadraugar í NATO hafa reynt að spilla því.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.6.2024 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Að kjósa taktískt!
3.6.2024 | 18:48
Vit(fir)ringarnir sem telja sig geta útskýrt stórsigur Höllu í forsetakosningunum segja að fólk hafi kosið "taktískt" til þess að losna við Katrínu! Ekki íslenska enda eru vitringarnir að láta ljós sitt skína á útlensku en skilja ekki alltaf sínar eigin slettur. Meina líklega að kjósendur hafi ekki stutt Höllu en bara verið á móti aðalkeppinaut hennar, Katrínu. Þetta er auðvitað ágiskunarspeki ættuð úr háskólaskýinu.
Mun líklegri skýring á stórsigri Höllu er afburða málflutningur í lok kosningabaráttunnar. Sá boðskapur fór svo fyrir brjóstið á kaldastríðsprelátum ríkisstjórnarinnar að þeir gerðu tilraun til að bregða fyrir hana fæti. Í Mbl-bloggi Björns Bjarnasonar á kjördag stóð "Hættulegur boðskapur Höllu T - Halla boðar að hún ætli að sitja á Bessastöðum í stöðugu "samtali" við þjóðina og hún sagði að kvöldi 31. maí "að sér fyndist ekki sjálfsagt að kaupa vopn fyrir Úkraínumenn "án samtals" og að það samræmdist ekki gildum Íslands" svo vitnað sé í Vísi. Og hún bætti við - Í heimi þar sem allar stórþjóðir eru að velja stríð held ég að við leggjum mest af mörkum með því að standa fyrir og velja frið. Ég hef sagt það og ég bara endurtek það og ég tel að það sé hægt að semja um hvað sem er-"
Þessi boðskapur Höllu er nákvæmlega sá sem velviljaðir og kunnáttusamlegir Íslendingar hafa stutt. Halla kom honum til skila í lok kosningabaráttunnar og vann kosningarnar.
Eyðileggjum Úkraínu
1.6.2024 | 16:02
Ríkisstjórn Íslands ætlar að eyða milljörðum króna árlega í hernaðarrekstur NATO-ESB í Úkraínu gegn "tilefnislausum" árásum Rússa. https://tuckercarlson.com/tucker-show-jeffrey-sachs
Blómi ungra Úkraínumanna, sem voru gerðir að stríðsverktökum fyrir NATO-ESB, er fallinn. Um helmingur Úkraínumanna er farinn, flestir til Rússlands. "Fjárfestar", braskarar og þjófar NATO-ESB-landa eiga þegar nærri þriðjung landbúnaðarlands Úkraínu sem er eitt það besta í heimi. Og stóran hluta auðlinda og fyrirtækja sem einhver framtíð er i.
Eyðilegging Úkraínu er komin langt. Landið er ekki lengur sjálfstætt þjóðríki með lögmætan forseta, kjörtímabil hans er liðið. Íbúar austurhlutans hafa klofið sig frá og ákváðu eftir 10 ára ofsóknir Kænugarðsstjórnarinnar að sameinast Rússlandi.
Máttlaus stjórnvöld Íslands eyða fé landsmanna í að eyðileggja gamalt vinaland og opna það fyrir ruplurum og þjófum NATO-ESB-landa. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/05/31/bjarni_raeddi_vid_selenski_ukraina_tharf_taeki_og_t/
https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hernaður Íslands
30.5.2024 | 17:35
Hernaðarstuðningur Íslands kostar þjóðina mannorðið sem vopnlaus friðarþjóð og auk þess viðskiptasambandið við eitt besta viðskiptalandið á lýðveldistímanum. Hernaðarrekstur NATO og ESB gegn rússneskum íbúum Úkraínu og nú Rússlandi sjálfu hófst af uppskálduðu tilefni snemma árs 2014 með sviðsettri uppreisn og vopnuðu valdaráni á vegum ríkisstjórnar Obama og bandamanna. Markmiðið er að taka Úkraínu inn í NATO og ESB. Og ekki síst, egna Rússa til styrjaldar sem fávísir NATO/ESB-forsprakkar halda að hægt sé að vinna!
Sum NATO- og ESB-lönd hafa aukið stríðsæsingarnar og Stoltenberg (framkvæmdastjóri NATO) er einn háværasti stríðsmangarinn. Hann er "hættulegur maður" segir ríkisstjórn Ítalíu. https://ground.news/article/italian-deputy-pm-calls-nato-boss-a-dangerous-man
https://www.youtube.com/watch?v=eptbaN4npaA
Stríðsæsingarnar gegn Rússlandi nú eru álíka tilefnislausar og síðustu heila öldina https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/. Aftur á móti er full ástæða til að óttast hernað NATO- og ESB-landa eins og menn vita í Viet Nam, Írak, Serbíu, Sómalíu, Libíu, Afganistan, Sýrlandi, Jemen, Palestínu----
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.5.2024 kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Svindlgróði
23.5.2024 | 14:36
Þjófalöndin, sem reka áfram loftslagssvindlið, eru farin að græða fúlgur á "loftslagslánum" til fátækra landa. Frakkland, Bandaríkin, Þýskaland, Japan og fleri rík lönd moka nú heim fúlgum af vöxtum af þessum lánum.
Þegar Kyoto- og Parísar-samningunum var logið inn á heimsbyggðina sögðu þau að fátæku löndin þyrftu mikla fjárstyrki til þess að berjast gegn "loftslagsbreytingum".
Það var að sjálfsögðu blekkingaleikur byggður á vísindafölsunum og efndirnar urðu eins og venjulega: rupl og þjófnaður á eigum fátækra landa. https://www.reuters.com/investigates/special-report/climate-change-loans/
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig vorum við login í EES?
20.5.2024 | 13:27
Eftir þöggun og rangfærslur síðustu áratuga hefur umræðan um sjálfstæði landsins og EES tekið við sér í vetur í aðdraganda forsetakosninganna. Og jafnvel hefur hár lygamúrinn verið klifinn af mönnum sem þekkja til.
Hvernig voru Íslendingar vélaðir í EES?
Dísa í undralandi
18.5.2024 | 15:40
Dísa og tveir Austurseltingar blönduðu sér í innanríkismál Georgíu með áróðursræðum í mótmælagöngu gegn Georgiskum lögum um erlenda erindreka. Irakli Garibashvili, leiðtogi ráðandi stjórnmálaflokks Georgíu, segir að um sé að ræða móðgun við Georgíu.
Georgíumenn eru ekki heimskir (Stalín, Schevardnatse ofl. gáfumenn voru frá Georgíu) svo íslenskar og eystrasalts- slettirekur ættu að vara sig á að abbast upp á þá, þeir stjórna sínum málum sjálfir. Spillingaröflin i NATO/ESB stefna að svipaðri "litabyltingu" í Georgíu, Slóvakíu og Hvítarússlandi og þau frömdu í Úkraínu fyrir 10 árum sem var upphaf Úkraínustríðsins.
Ísland í undirróðri
16.5.2024 | 14:10
Bloggar | Breytt 17.5.2024 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Örþrifalygar Breta
14.5.2024 | 13:22
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.5.2024 kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
NATO úrelt
12.5.2024 | 13:22
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.5.2024 kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aftur bankarán?
20.4.2024 | 14:03
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.4.2024 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kísilverksmiðja í gang
18.4.2024 | 12:01
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)