Dansað eftir pípu ESB

snake-charmer-his-snake-29192914.jpgUppþotin í Hvítarússlandi (fjármögnuð utan Hvítarússlands samkvæmt rússneskum blöðum), beint og óbeint studd af ESB, munu verða notuð til að reyna að ná Hvítarússlandi undir sams konar braskvæðingu, rányrkju og rupl og öðrum jaðarlöndum ESB. Dæmi er nágrannaland Hvítarússlands, Litháen, lítil þjóð sem missti unga fólkið úr landi, nærri milljón manns, þegar hin lamaða hönd ESB lagðist yfir landið.

Nú ætlar ESB með skinhelgi og hótunum eins og vant er að setja einhvers konar bann á Hvítarússland og fá með sér alla sína leppa. Þar á meðal EES-Ísland. Við álpuðumst með í undirbúninginn að valdaráni auðrónanna í Úkraínu og fengum eina helstu viðskiptaþjóð Íslands, Rússa, á móti okkur fyrir vikið. Kannske ætla okkar máttlitlu stjórnvöld að bæta um betur og hjálpa ESB að koma ruplinu af stað í Hvítarússlandi.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2020/08/17/funda_vegna_krisunnar_i_hvita_russlandi/


Það var Svíi sem hafði vitið

anders_tegnell1210168.jpg"-Árangur Svía sýnir raunkostnaðinn af okkar hrokafullu og misheppnuðu valdamönnum

Hörmuleg vanhæfni hefur að óþörfu afmáð milljarða punda úr breska hagkerfinu.

Nú vitum við það: Svíar skildu þetta að mestu rétt en breskir valdamenn herfilega rangt. Anders Tegnell, sóttavarnastjóra Svía, hefur tekist að framkvæma þrjú stórvirki: Færri dauðsföll miðað við íbúafjölda en Bretland; varðveislu grunnfrelsis og tækifæra, þar með talin starfræksla skóla; og, sem er mest undravert, efnahagssamdrátt sem er minni en helmingur af samdrættinum í Bretlandi

Okkar hortugu skrifstofublækur og "sérfræðingar" stjórnvalda ættu að skammast sín: Viðbrögð þeirra við Kórónaveiruni hafa verið ein verstu stjórnmálamistök nútímasögunnar, verri en Írak, Afganistan, fjármálakreppan, Súesmistökin og ESB gjaldeyriskerfið. Milljónir manna missa atvinnuna-"

https://www.telegraph.co.uk/news/2020/08/12/swedens-success-shows-true-cost-arrogant-failed-establishment/


Hver fjármagnar uppþotin í Hvítarússlandi?

minsk-342844_960_720.jpgSkemmdarverkapeningar frá ESB, Obamastjórninni og auðrónum fjármögnuðu upplausnina í Úkraínu á miðjum áratugnum, löglega kjörin stjórnvöld voru hrakin frá völdum og leppar settir í staðinn. Undirsátar ESB, þar á meðal Ísland, dönsuðu með. Þökk sé Rússum er Úkraína ennþá sjálfstæð.

https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/

Úkraínuuppþotin gætu verið að endurtaka sig í Hvítarússlandi. Fransk-Þýska veldið, ESB, sér nú möguleikana á að fá þar leppstjórn og opna landið fyrir rányrkju og undirbúa innlimun. Hættan af landvinningastefnu ESB virðist vera að vaxa, mögulega hefur sjálfstæði Breta hleypt hefndarhug og aukið landvinningaþrá ESB-veldisins en það hefur verið sögulegt hlutverk Breta og Rússa að stöðva Franska og Þýska landvinninga.


Feluleikur

hidepexels-pixabay-262103.jpgHver ræður í raun hvort Ísland sé lokað? Af hverju ætla iðjuver að hætta? Af hverju eru bændur að gefast upp?

Reynt er að hylma yfir afleiðingarnar sem vald ESB hefur hér, hræðsluáróður og ruslvísindi eru notuð til að afsaka. Yfirhylmingar


Geðveikt

crazypexels-danya-gutan-3278364.jpgFólk verður geðveikt á að vera lokað inni vegna "aðgerða" stjórnmálamanna á Vesturlöndum gegn Kórónuveirunni. "Aðgerðirnar" koma nokkrum árum of seint. Þegar Kínastjórn tókst að gera Alþjóða heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna að strengjabrúðu sinni og settir voru vanhæfir menn frá spilltum löndum þar yfir tapaðist bardaginn við að hemja Kínaveirurnar.

https://www.frjalstland.is/2020/04/22/otraustar-althjodastofnanir/#more-1913

Þessi veira virðist svipuð og flestar þær fyrri, hjálpar til að drepa milljón manns á ári en virðist vægari en Hong Kong flensan sem drap milljónir en gleymdist af því að stjórnmálamenn og fjölmiðlar höfðu nóg af öðrum æsifregnum. Það er ekki lengur í tísku að æsa lýðinn yfir gömlum sjúkdómum þó árlega deyi tugir milljóna úr ýmsum smitsjúkdómum og milljónir smitist af eyðni og öðrum sóttum.

Kannske komast þeir best út úr þessari flensu sem fóru í minnstar stjórnvalds "aðgerðir" til að berjast gegn henni: Svíar. Þar er ónýt minnihlutastjórn. Stjórnmálamenn á Vesturlöndum eru annars haldnir miklum sjálfsbirging og halda að þeir geti stjórnað öllu milli himins og jarðar. Nú er að koma í ljós að oft er best að þeir geri sem minnst.

https://www.euronews.com/2020/07/28/sweden-s-coronavirus-spread-slows-but-immunity-still-a-puzzle

Dánartíðnin í Svíþjóð og á flestum Vesturlöndum er dottin niður. Á Íslandi hefur enginn dáið af veirunni í 4 mánuði. Nú er hægt að lækna flesta sem fá hana. Það er afnám mannréttinda að loka menn inni eða úti og stöðugur hræðsluáróður gerir fólk geðveikt.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband