Lýðræðið í uppnámi

skjaldarmerkiNærri þriðjungur landsmanna fékk ekki fulltrúa á Alþingi í kosningunum, stjórn landsins hefur ekki meirihluta landsmanna a bak við sig, aðeins 40%.

Ef ekki tekst að bæta framkvæmd lýðræðisins getur landið setið uppi með algert valdaleysi í eigin málum, gjaldmiðil annarra manna og auðlindirnar komnar í eigu útlendinga.

https://www.frjalstland.is/2024/12/30/islenska-lydraedid-i-uppnami/


Stefnuyfirlýsing

little-girl-2516578_960_720nýju ríkisstjórnarinnar byrjar vel og lofar góðu um margt þó greinilega sé margt sagt af bjartsýni enda nýliðar að byrja sem þurfa frið til að átta sig. Verðmætasköpun, menningu og heilbrigði á að auka, vonandi gengur það vel.

Það á að hagræða og einfalda stjórnsýslu, breyta húsnæðismarkaðnum, herða eftirlit með starfsmannaleigum, auka orkuöflun. Og auðlindir landsins verði þjóðareign. Allt ágætt en nýja ríkisstjórnin á eftir að reka sig á að hún getur ekki stjórnað öllu, það þarf að afnema (eða hunsa) margs konar reglu-og lagaákvæði frá EES til þess. Til dæmis eiga aðilar í EES rétt til að eiga jarðlendur með orkulindum og að nýta orkuna, þar er forgangur þjóðarfyrirtækja Íslendinga andstæður EES. Húnæðismarkaðurinn kemst ekkí í lag meðan bankarnir eru reknir með regluverki EES og "fjárfestar" fá að braska með íbúðir.

Svo koma tískumálin í yfirlýsingunni: Styrkja við orkuskipti, vindorkunýtingu, kolefnishlutleysi. Alt saman draumórar sem stjórnað er frá Brussel og mundu kosta þjóðarauðinn verði reynt að koma þeim í framkvæmd.

Í lok stefnuyfirlýsingarinnar kemur svo vondur hortittur:

-" utanríkisstefnu sem byggir á - náinni samvinnu við Evrópusambandið, - norræn ríki og NATO - þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna (les aðlögunar) um aðild Íslands  að Evrópusabmbandinu - erlendum sérfræðingum falið að vina skýrslu um kosti og galla krónunnar-".

Nýja ríkissjórnin verður að fá tíma til að átta sig á hvað eru hagsmunir landsmanna. Sjálfstæð og hlutlaus utanríksstefna er fyrirskrifuð af okkar lýðveldisstofnendum. Aðild að Evrópusambandinu yrði til þess að sökkva Íslandi niður í vandamál deyjandi fátæktar- og hernaðarsambands. Missir eigin gjaldmiðils yrði stjórnlaus peninga- og efnahagsstefa sem gerði Ísland að bónbjargarlandi sem þyrfti að reiða sig á annarra manna peninga. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/12/21/stefnuyfirlysing_rikisstjornarinnar_i_heild_sinni/


Upplausn siðmenningar

nato-26848_960_720Forstjóri Geisla,- efna- og sýklavarna Rússlands var "felldur" segja vestrænir fjölmiðlar eins og hann hafi fallið á vígvelli. Það rétta er að Úkraínustjórn lét myrða hann (undir leiðsögn frá Bandaríkjunum) fyrir utan heimili hans. Hann hafði afhjúpað sýklavopnaþróun Bandaríkjanna í Úkraínu og notkun úkraínuhers á bönnuðum efna-og sýklavopnum.

Úkraínskir, breskir og bandarískir fjölmiðlar hafa hrósað morðingjanum og kallað hryðjuverkið "lögmætt"! Það þýðir að Rússar geta farið að senda leigumorðingja á forstjóra eða herforingja í NATO/ESB-löndum og myrt þá "löglega"!

Úkraínustjórn heldur úti leigumorðingjum og hryðjuverkamönnum í Rússlandi. Aðallega hafa fréttir af morðum á blaðamönnum, rithöfundum og áhrifavöldum lekið út. Vestrænar falsfréttasmiðjur (t.d. MI5, MI6, UK Foreign Office, US State Department, CIA ofl) dreifa með aðstoð til dæmis Reuters, AfP, AP ofl. fölsunum um "rússnesk skemmdarverk", s.s. skemmdir á sæstrengjum eða byrlanir. Og NATO/ESB-lepparnir lepja falsanirnar upp og halda fundi um að auka "varnirnar"!

Einu skemmdarverkin sem sannast hafa eru eyðilegging Bandarikjanna á gasleiðslu í Eystrasalti.

Stjórnvöld, fjölmiðlar og áhrifamenn stunda í auknum mæli falsanir og áróður. Ábyrgir, heiðarlegir og fróðir fréttamenn, stjórnmálamenn og álitsgjafar heyrast varla í stórfjölmiðlunum. Þegar við heyrum að maður hafi verið felldur eins og hermaður á vígvelli þegar hann var myrtur við heimili sitt eru siðleysingjar eða falsarar að tala. Og þegar ákveðnum þjóðum eru kennd skemmdarverk að ósönnuðu máli eru siðlausir menn að bera út níð eða lygar.

Hin rómaða (af okkur) vestræna siðmenning er greinilega að leysast upp í óhróðri lygalaupa.


Við erum í óþokkaflokki

mourning-5501796_960_720"Framlögin til velferðarmála þarf að færa til hermála! - Rússarnir eru að koma"!

Þetta segir aðalgáfnaljós NATO, Mark Rutte aðalritari. https://www.nato.int/cps/en/natohq/opinions_231348.htm Þetta er sama slitna grammófónplatan sem Churchill og Trumann byrjuðu Kalda Stríðið með fyrir 8 áratugum.

Churchill ætlaði í stríð við Rússland strax og Rauði herinn hafði sigrað nasistana og tekið Berlín (ekki segja, þetta er leyndarmál, vitrari menn gátu stöðvað áformin). Trumann lét varpa kjanrorkusprengjum á Japan þó landið hafi í raun þegar gefist upp vegna þess að Rauði Herinn var á leiðinni og Japanir vildu með engu móti fá sömu útreið og Þjóðverjar.

Mark Rutte, sem er aflóa stjórnmálamaður frá ESB/NATO-landi, þarf að breiða yfir að Rússar eru að verjast landvinningahernaði NATO sem hófst fyrir 11 árum með árás á höfðuðborg Úkraínu og blóðugu valdaráni

Rutte og gáfnaljós NATO segjast ætla að sigra Rússland hernaðarlega. Þetta geta Rússarnir ekki misskilið enda hafa þeir heyrt þetta áður frá Napoleon og Hitler.

NATO hefur aldrei gert neitt gagn, allra síst fyrir friðinn, en mikið ógagn og stundað manndráp á okkar vegum. Ísland getur ekki verið þekkt fyrir að vera í slíkum óþokkaflokki og þarf að segja sig úr.


Ingadúnatogga! Fljótt, fljótt!

skjaldarmerkiFlýtið ykkur að mynda stjórn, starfandi stjórnin nú er þjóðhættuleg og gæti verið búin að koma okkur í kjarnorkustríð með bullu-Biden, Brusselfjósinu og læmýsunum á næstu 6 vikum!

Það eru þegar komnar hundruðir hermanna til landsins. Herflugvélagnýrinn yfir Keflavíkurflugvelli vex nú stöðugt. Helguvík verður herskipahöfn. Tugmilljarða fé almennings er eytt í vopn fyrir ólöglega hryðjuverkastjórn.

Inga, Dúna, Togga! Komiði ríkisstjórn á koppinn fljótt fljótt svo við losnum við leikbrúður Evrópusambandsins og NATO úr stjórnarráðinu!

(íslenska orðið læmý þýðir Breti, á amerísku limey)


Hryðjuverk í Sýrlandi

war-5064697_960_720Hryðjuverkasamtök á vegum Ísrael og Bandaríkjanna, HTS þekkt sem illræmdustu sjálfsmorðsárasasamtök gegn almennum borgurum, hafa nú hertekið Sýrland. HTS er afsprengi hryðjuverkaflokka sem Bandaríkin og Ísrael hafa fóstrað á svæðinu, AlKaida, ISIS. Forsætisráðherra Ísrael og mistakaforsetinn Biden monta sig nú af að eiga heiðurinn af sigri hryðjuverkamannanna.

Kannske tekst Biden eftir allt saman að koma af sað 3. heimsstyrjöldinni þó Rússar hafi setið á sér að svara árásum leppa hans á Rússland hingað til. Ísrael gerir áfram stöðugar árásir á Sýrland og hefur nú hertekið Sýrlandshluta Golanhæða.

Falsfréttamiðlar á Vesturlöndum kalla hryðjuverkamennina nú "uppreisnarmenn" af því að þeir vinna nú fyrir stríðsríkin! https://edition.cnn.com/2024/12/06/world/video/abu-mohammad-al-jolani-syria-rebel-leader-karadsheh-digvid

Eftir að hafa haldið Sýrlandi í fátækt, örbirgð og borgarastyrjöld með því að einangra landið, útiloka það frá viðskiptum með refsiaðgerðum, hersetið það og stolið útflutningsvöru landsins, hefur Bandaríkjunum og Ísrael nú tekist að að láta sína hryðjuverkamenn hernema landið. Kúgaðir Sýrlendingar komast nú undan einræðisherra og undir hryðjuverkamenn! Bandaríska setuliðið hefur stolið obbanum af útfutningsvöru (olíu) Sýrlands og Ísrael hóf núverandi stríð með Bandaríkjunum af heimatilbúnu tilefni til þess að komast yfir auðlindir Palestínu og Sýrlands.

Þetta er svipuð aðferð og stríðsþjórðir NATO og Evrópusambandsins hafa notað í Írak, Libíu og Úkraínu, eyðileggja efnahag landanna og koma af stað borgarastyrjöld. Í Úkraínu lentu þeir í flasinu á Rússum sem hafa langa reynslu af að berja niður ræningja og drápssveitir stríðsþjóða.


Að glata auðlindum

hverpexels-photo-12782208Erlendir "fjárfestar" hafa leyfi til að eiga og nýta auðlindir Íslands í samræmi við "fjórfrelsið" svokallaða í EES-samningnum sem átti að setja af stað mikla uppbyggingu að sögn laupanna sem komu EES yfir Ísland. Auðmenn/hrægammar/fjárfestar í Evrópusambandinu og EES, og þeir sem eiga skúffufyrirtæki þar, mega samkvæmt EES eiga og nýta jarðnæði, jarðvarma, fallvötn, ferskvatn á Íslandi og eru þegar byrjaðir að setja krumlurnar í auðlindir landsins. Evrópusambandið hefur skipað íslenskum stjórnvöldum að endurnýja virkjanaleyfi reglulega og tryggja að aðilar í Evrópusambandinu/EES geti boðið í leyfin. https://www.frjalstland.is/2020/02/26/fyrirspurn-um-uthlutun-nytingarrettar-orkuaudlinda/

Friðrik Á. Friðriksson skrifar upplýsandi grein (Morgunblaðið 7.12.2024) um tilraunir íslenskra stjórnvalda til að klóra yfir valdaleysið sem EES-samninguinn hefur leitt af sér. Koma á á laggirnar lögum um "fjárfestingarýni" á uppkaup erlendra aðila á auðlindum, sagt til þess að tryggja þjóðaröryggi. Ekki eru neinar líkur á að slík löggjöf, þó hún sé í lagi í sjálfu sér, breyti neinu til framtíðar, "fjárfestar" eða braskfyrirtæki geta haldið áfram að hirða íslenskan þjóðarauð á hrakverði í þeirra augum meðan EES-samningurinn er látinn vera í gildi. Eins og menn muna eru lög Evrópusambandsins æðri íslenskum lögum samkvæmt Evrópusambandinu og þeim sem tala máli sambandsins.

Reynsla er komin af "hrægammasjóðum" eða margþjóðlegum "fjárfestum", sem leika lausum hala í skjóli Evrópusambandsins eða leppríkja Vesturlanda, m.a. í Eystrasaltslöndum, Grikklandi, Úkraínu þar sem fjarlæg "fjárfestingafélög" hafa eignast auðsuppspretturnar, unga fólkið hefur flust úr landi og þeir sem streitast á móti eiga á hættu að fá leiguþý með vopnabúr NATO eða annarra stríðsbákna á móti sér!


Hernaður okkar

usfalgfourth-of-july-394504_960_720Stríðið í Úkraínu og Rússlandi er orðið 11 ára en er vonandi að ljúka ef treysta má  loforðum Donald Trump. https://www.frjalstland.is/2024/11/24/ny-vidhorf-i-heimsmalum

Þeir sem trúa að Rússland eigi upptök að stríðinu hafa treyst á vestræna stórfjölmiðla sem flytja oft áróður stjórnvalda í dulargervi frétta. Ísland hefur dregist með í stríðsreksturinn og hafa stjórnvöld landsins gert mjög alvarleg mistök í tengslum við stríðið sem taka mun langan tíma að ráða bót á.

Fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson tók viðtal við Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem er Íslendingum að góðu kunnur. Rússneski fjölmiðillinn Sputnik birtir viðtalið sem þekkingarþurfi Íslendingar geta kynnt sér í opnum aðgangi

https://sputnikglobe.com/20241205/watch-full-video-of-sergey-lavrovs-interview-with-american-journalist-tucker-carlson-1121102130.html

eða á vef Tucker https://tuckercarlson.com/. Afhjúpun Tucker um áróður og lygar og forsetakosningarnar vestra hafa haft mikil áhrif en hann spáði að reynt yrði að ráða Trump af dögum þegar ljóst yrði að hann mundi vinna kosningarnar. Það reyndist rétt.

 


Stríðssamband

eu-flageurope-1045334_960_720Evrópusambandið er orðið stríðssamband eins og vísir menn sáu að mundi gerast þegar helstu stríðsþjóðir V-Evrópu stofnuðu til bandalags fyrir 7 áratugum. Meira að segja dátunum í NATO er nú orðið nóg um og segjast alveg geta ráðið sjálfir við Rússa!

-Kaja Kallas er orðin kommissar í utanríkismálum og öryggismálum Evrópusambandsins af því að hún borðar Rússa í morgunmat (að eigin sögn) og var ónothæf heima í Litháen. https://commission.europa.eu/about/organisation/college-commissioners/kaja-kallas_en

-Andrius Kublius er orðinn  stríðskommissar Evrópusambandsins af því að hann hefur verið Rússahatari í áratugi og vann í brunarústum Litháen eftir að landið lenti í Evrópusambandinu og misti ungu kynslóðina til útlanda. https://www.politico.eu/article/andrius-kubilius-defense-space-chief-european-parliament-hearing-russia/

-Annalena Baerbock, utanríkisráð"herra" Þýskalands, er vinsæl hjá gáfnaljósum Evrópusambandsins af því að hún hreytir svívirðingum í Rússa og Kínverja (mikilvægustu viðskiptalönd Þýskalands). https://sputnikglobe.com/20241203/cringe-diplomacy-germanys-fm-unleashes-tirade-of-threats--accusations-during-china-trip-1121079546.html

-Ursula var með spillingarmál yfirvofandi (í hermálaráuneyti Þýskalands) en er illa haldin af Rússahræðslu og var því gerð að forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins https://commissioners.ec.europa.eu/ursula-von-der-leyen_en

Og ræfils Norðurlönd eru búin að fá stríðsæsingaluðrur sem leiðtoga sem hegða sér eins og óðir hundar.

Með þetta fólk sem leiðtoga á Evrópusambandið og lepparnir, EES, ekki eftir annað en að verða kjarnorkustríði að bráð.

https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/

 


Hjakkað í sama farinu

Althingi,-framanKosningarnar í gær urðu árangurslausar (mbl 1.12.2024). Við fengum aftur fjórflokkinn eins og herjaði í áratugi á síðustu öld og kom á erlendri hersetu, erlednu tilskipanavaldi, braskaravæðingu fyrirtækja þjóðarinnar og bankahruni:

 

Sjálfstæðismenn 35,2% (kratasálir þar af 15,8%)

Framsóknarmenn  19,9% (Miðflokkurinn þar af 12,1%)

Vinstrið        13,8% (Flokkur fólksins)

Kratar          20,8% (Samfylking)

Þetta er svipað og Fjórflokkurinn fékk á síðustu öld nema kratarnir hafa vaxið. Það er alvörumál, þegar uppbygging landsins eftir 700 ára evrópska yfirstjórn stóð sem hæst voru kratar smáflokkur sem enginn viðurkenndi að hafa kosið. Þessi kratabólga nú gæti þýtt að Ísland sé að síga niður í kratamenningu Norðurlanda sem gjörspillti stjórnmálalífi þeirra. Stóru málin, s.s. erlenda tilskipanavaldið, þáttaka í hernaði gegn vinaþjóð eða framkvæmdastopp ESB-regluverksins voru ekki efst á baugi í þessum kosningum.

Meginástæðan fyrir þessari stjórnmálastöðnun er að "þjóðmenningarstofnunin", Ríkisútvarpið, útvarpar leynt og ljóst krataáróðri og reynir að níða skóinn niður af öðrum hreyfingum. Það verður því varla endurnýjun í íslensku stjórnmálalífi fyrr en RÚV hefur verið hlutleyst.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband