Brjóstvörn

sldierspexels-photo-280002Útrunni fv. forseti Úkraínu segist vera "brjóstvörn vestrænna "gilda" (mbl.30.10.2024) og Vesturlanda sjálfra gegn landvinningastefnu. Rússa! Han snýr þessu auðvitað á haus eins og honum hefur verið kennt enda leppur mestu lygasmiðja heims í Washington og London.

Lögleg stjórn Úkraínu hafnaði aðild að NATO 3.6.2010 og að ESB 21.11.2013 en þá settu "friðarbandalögin" (NATO og ESB) af stað árás á stjórnvöld landsins til að koma þeim frá.

Það var Obama/Biden-stjórn Bandaríkjanna sem framdi vopnaða valdaránið í Úkraínu, byssumenn þjálfaðir af CIA í Póllandi drápu mikinn fjölda stjórnarstarfsmanna auk venjulegra borgara. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna kom til valda leppstjórn með aðstoð úkraínskra nýnasista sem hóf strax í febrúar 2014  borgarastyrjöld með hernaði gegn rússneskum svæðum Donbas. Þegar NATO og ESB höfðu svikið alla samninga við Rússland og fyllt Úkraínu af vopnum skarst rússneski herinn í leikinn 2022 og er nú smám saman að frelsa svæðin sem leppstjórnin hefur undirokað með landvinningahernaði NATO og ESB en þau lýstu yfir sjálfstjórn þegar séð var fram á að leppar NATO og ESB mundu taka völdin.

Fjárfestar og hrægammar Ameríku (s.s. Black Rock) hafa þegar náð undir sig miklu af auð Úkraínu, meir en þriðjungi landbúnaðarlands, þess besta í Evrópu. Rotchildbankinn er farinn að fjármagna hernað leppstjórnarinnar að hluta enda alvanur að fjármagna stríð. Bidenfeðgar bröskuðu líka í skjóli spillingar valdsins. Þegar endurreisn Úkraínu hefst verður erfiðast að losna við ruplarana frá Vesturlöndum. Þeir einu sem kunna það eru Rússar enda hundeltir af þjófum Vesturlanda í mannsaldra.

En Zelenski væri góður sem brjóstvörn Úkraínumanna gegn vestrænum svikurum og ræningajalöndum sem hafa þegar stolið 600 milljörðum dala frá Rússum og láta nú leppstjórnina í Úkraínu fórna blómanum úr úkraínsku þjóðinni við að berjast fyrir "vestrænum gildum"!


Útrunninn Zelenski

tank-5125073_960_720Kjörtímabil hans rann út í maí. En gáfnaljósin  á Norðurlöndum bjóða honum samt á montfund þar sem hann getur betlað meiri vopn og pening. Norðurlönd eru öll orðin hjálendur Bandaríkjanna og kjölturakka þeirra í London og Brussel og hlýða þeim í blindni og hefur verið talin trú um að þau eigi að "styðja Úkraínu"!

Það er nærri búið að tæma vopnageymslur ESB/NATO og Zelenski hefur lítið gagn af Norðurlandavopnum, Rússarnir eru fljótir að eyða þeim.

Eins og glöggir vita er svo kallaður "stuðningur við Úkraínu" stuðningur við landvinningahernað NATO og ESB. Nýnasistarnir í Úkraínu og hermenn frá NATO/ESB eru meira að segja farnir að ráðst inn í Rússland.

Norðurlandaráð ætlar að fjalla um öryggi á norðurslóð en Rússland á og stjórnar stærsta hlutanum af þeim slóðum. Gáfnaljós Norðurlanda hafa ekki vit á að fá Rússa til viðtals um norðurslóðir, þeir trúa enn lygaþvættingnum  í Churchill og Truman um hættulegu Rússana.

Norðurlandaráð var lengi fylleríissamkoma norðurlandakrata og ber enn dám af góðlátlegu tilgangsleysi þeirra hittinga. Lönd heimsins horfa nú á Norðurlönd með undrun og eru farin að stilla saman strengi gegn manndrápum og rupli á vegum NATO- og ESB-landa, þessa stundina í Úkraínu og Palestínu. https://brics-russia2024.ru/en/


Ómarktækur EES-samningur

eu-flageurope-1045334_960_720Guðmundur Alfreðsson, lögfræðingur í þjóðarétti hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði þegar EES-samningurin komst á dagskrá að hann samrýmdist ekki stjórnarskránni. Um bókun 35 sagði hann að samningsloforð um forgang EES-reglna væri ekki marktækt https://www.frjalstland.is/2024/10/26/ees-samningurinn-er-ekki-marktaekur/

Þetta var þaggað niður af þeim sem vildu koma Íslandi undir erlent vald og álit 4-manna nefndar þáverandi utanríkisráðherra  tekið fram yfir. Það álit reyndist rangt.


Órar OR

gufaNú ætlar Orkuveitan að fara að græða almennilega, 350 milljarða, á loftslagssvindlinu og ekki seinna vænna meðan margir trúa ennþá lygunum um skaðsemi koltvísýrings og fjárplógskerfi ESB um losun koltvísýrings (ETS) er enn ekki dautt. Leikfélagar OR ætla að dæla reyk frá Evrópusambandinu niður í karsprungið Reykjaneshraunið og vonast til að hann komi ekki upp aftur þegar hann hefur eyðilagt ferskvatnið í Reykjanesinu.

Það er borin von, sá hluti reyksins sem binst myndar s.k karbónöt en það eru einmitt þau sem valda gríðarlegri losun koltvísýrings úr hrauninu í kvikuumbrotum á Reykjanesi. Og koltvísýringsgasið seitlar upp úr sprungum ásamt með menguninni sem fylgir því frá ESB.

Aðferð Carbfix við að binda koltvisýring er óreynd og mjög takmörkuð og skiptir engu máli um loftslagið. Jörðin sjálf gleypir um 1000.000.000.000 tonn (þúsund gígatonn) af koltvísýring árlega en CarbfixOR ætla að byrja með um milljón tonn sem mótsvarar einum milljónasta hluta af því sem jörðin bindur án þatttöku OR eða ESB. Aðrar aðferðir eru betri, þekktari og öruggari, þar á meðal ræktun, s.s. skógrækt.

Verkefni stjórnenda OR er að einbeita sér að því að útvega okkur orku og koma í veg fyrir heitavatns- og rafmagnsskort í staðinn fyrir að leika sér við loftslagsloddara sem véla sveitamenn í glæfraverkefni (Mbl. 23.10.2024)


Heimssamvinna

Kazanfree-photo-of-kazan-kremlin-behind-cobblestone-streetBRICS eru vaxandi samtök sjálfstæðra þjóða sem standa utan stríðsbandalaganna (NATO og ESB) og vinna gegn valdi þeirra, aðallega á efnahagssviðinu. Efnahagsumfang BRICS er orðið stærra en gömlu iðnveldanna. Samtökin halda nú fund í Kazan þangað sem forsetar Kína, Indlands og Rússlands ásamt fleiri þjóðarleiðtogum mæta. https://brics-russia2024.ru/en/

Þetta er umhugsunarefni fyrir Ísland sem er orðið hjálenda ESB og NATO á meðan heimsbyggðin eflir sína efnahagssamvinnu og sjálfstæði og stefnir a frið. Þeir sem gerðu Ísland sjálfstætt 1944 sáu fyrir sér hlutlaust land með vináttu og samvinnu við allar þjóðir. Þeir voru sviknir strax 1949 af forustumönnum frá Sjálfstæðisflokki, Krötum og Framsóknarflokki, Bjarna Benediktssyni, Emil Jónssyni og Eysteini Jónssyni sem fóru til Washington og gerðu Ísland að NATO-landi en með í kaupunum var að hér yrði ekki her á friðartímum.  Það var auðvitað líka svikið. Bestu menn áttuðu sig strax á að NATO yrði kúgunarher Ameríku- og Breta-auðvaldsins og efndu til mikilla mótmæla 30 mars 1949 þar sem lögregla ífærð breskum herskrúða var látin slást við mótmælendur.

 


Hættuleg ríkisstjórn

nuclear-explosion-356108_960_720Ein hættulegasta ríkisstjórn sem komist hefur til valda í landinu er nú loksins að fara frá. Hún hefur komið landinu í stríð við vina-og viðskiptþjóð af uppspunnu tilefni sríðsæsingamanna NATO og Evrópu-sambandsins/EES. Hinn heimatilbúni óvinur er enginn annar en eitt helsta kjarnorkuveldi heims!

https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/

Hún eyðir skattfé landsmanna í vopn og stríðsaðföng.

Hún stundar refsingar gegn vinveittum þjóðum og veldur hruni útflutningstekna og gjaldþroti fyrirtækja.

Hún hefur komið yfir landið vaxandi fjölda af lögum og reglum Evrópusambandsins/EES um orkumál og umhverfismál sem stöðva uppbyggingu hérlendis.

Hún hefur sökkt landinu dýpra í okurdýrar en óþarfar, gagnslausar og barnslegar "loftslagsskuldbindingar" sem Evrópusambandið stjórnar og hirðir fé af.

Hún hyggst láta Alþingi samþykkja að lög Evrópusambandsins, sem er nú að breytast í hernaðarsamband, sem berast með EES-tilskipunum, séu æðri landslögum. Og brjóta þannig stjórnarskrána einn ganginn enn.

Hún og núverandi Alþingisheimur þurfa að koma sér burt áður en meiri skaði skeður. Við skulum vona að landsmenn beri gæfu til þess að kjósa sér betri fulltrúa til Alþingis í komandi kosningum.

 


Danskur vindur

oldwindmillpexels-photo-6559426Nú stendur til að auka "samvinnu" Dana og Íslendinga í "grænum verkefnum" og orkuöflun. Hvergi í heimi er orka dýrari og óhagkvæmari en í Danmörku enda Danir lengi virkir þátttakendur í "loftslagsmálum"!

Danska ríkið á meirihluta í stærsta sjóvindmyllufyrirtæki heims, Örsted, stærsti vindmylluframleiðandinn er líka Danskur, Vestas. Risaverkefni Örsted hafa verið að stöðvast eitt af öðru þegar menn hafa áttað sig á hvert stefndi (vindmyllur ganga ekki fyrir vindi heldur ríkisstyrkjum!) https://www.theguardian.com/environment/2023/nov/01/rsted-cancels-two-us-offshore-windfarm-projects-at-33bn-cost

Í Svíþjóð keyrði stórt "rafeldsneytisverkefni" Örsted í strand í sumar. Þar átti að framleiða "rafeldsneyti", tréspíra úr rafgreiningarvetni og koltvísýring eins og í Carbon Recycling í Svartsengi. https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/ Það var auðvitað allt byggt á óskhyggju, það þarf tvöfalt meiri orku til að framleiða bara vetnið en sem fæst svo úr spíranum. Og ekki bætir úr skák að vindmyllurafmagnið í vetnisframleiðsluna er of dýrt og stopult. https://www.spglobal.com/commodityinsights/en/market-insights/latest-news/energy-transition/081524-orsted-scraps-swedish-flagshipone-e-methanol-project-under-development

Það er ekkert vitlaust að vinna með Dönum, bara ekki í orkumálum eða "grænum verkefnum"! https://www.frjalstland.is/2024/10/13/danskur-vindur/

Friðrik Daníelsson, efnaverkfræðingur


Meiri hamfarahlýnun!

icebergs-932963_960_720Síðasta sumar var það kaldasta síðan 1992 í Reykjavík. (Mbl 10.10.2024). Loftslagslygasmiðjurnar (SÞ-UNEP, -IPCC, -WMO, NOAA, NASA-Giss, EU-Copernicus, CRU ofl.) halda sleitulaust áfram að gefa út falskar fullyrðingar um loftslag "-síðasta ár var það hlýjasta frá upphafi mælinga-"! hefur verið endurtekið í aldarþriðjung.

Kuldaskeiðið 1965-1995 var tími áfalla, fiskileysis, auðlindaafsals, kalinna túna, svartsýni og framtaksleysis, stjórnunarmistaka og loks sjálfstæðismissis 1993. Þegar svo fór að hlýna undir aldarlokin tók velsældin kipp upp á við. En loftslagskólnunin kemur alltaf aftur (eins og 1150 og 1965) og er orðin greinileg síðasta áratuginn með minni fiskafla og uppskerubresti þó vöxtur koltvísýringsins í loftinu gefi betri uppskeru sumstaðar ennþá.  Útbreiðsla hausthafíssins komst ekki niðurfyrir 4 milljónir ferkílómetra í ár eins og árið 2012. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf


Slök leskunnátta

pisafree-photo-of-the-leaning-tower-of-pisaFrú ráðherra Þórdís telur að alþingismenn kunni ekki að lesa en Evrópusambandið sendi enn einn bleðilinn um að leskunnáttu væri hér ábótavant (Písa) en það átti reyndar bara við um unglingana okkar! Þórdís ætlar að láta alþingismen afsala löggjafarvaldi Alþingis endanlega þó standi að lesa í starfslýsingu þeirra: "Alþingi og forseti fara saman með löggjafarvaldið" sem þýðir að ef Alþingi reynir að gera löggjafarvald Evrópusambandsins æðra sínu eigin yrði það marklaus gerningur nema stjórnarskránni https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html yrði breytt en það tekur ár og dag og þá gæti verið búið að leggja Evrópusambandið niður.

Reyndar hefur Alþingi hingað til samþykkt möglunarlaust allt tilskipanafarganið frá Evrópusambandinu vegna EES þó einhverjar túlkanir hafi ekki verið í anda Brussel og einstöku glórulaus mál látin hanga á horriminni enda íslenska stjórnkerfið of lítið til að kyngja öllu EES-svamlinu. Það gerir því ekki mikið til þó alþingismenn kunni ekki að lesa, Evrópusambandið stjórnar áfram meðan landsmenn kjósa sér máttlaust Alþingi og ráðherrar eins og Þórdís fara með stjórnvald hér. Nú standa aðeins eftir 20% kjósenda sem styðja núverandi ríkisstjórn.


Kjarnorkuver í hættu

chernobylpexels-photo-13726104Njósnarar Breta og Bandaríkjanna hjálpuðu Úkraínustjórn að skipuleggja eyðileggingu kjarnrokuversins í Kúrsk segir njósnastjóri Rússlands. https://www.rt.com/russia/605375-kursk-nuclear-threat-svr/

Úkraínuher réðst inn í Kúrsk hérað 6 ágúst sl. en var stöðvaður nálægt landamærunum af rússneska hernum. Úkraínuher (það er drápssveitir á vegum NATO og ESB) halda áfram að senda sprengjuskeyti á Kursk kjarnorkuverið sem Rússlandsher hefur hingað til skotið niður. Kænugarðsstjórnin reynir stöðugt að sprengja Zaporozhie kjarnorkuverið sem stendur við stórfljótið Dnépr.

Það er orðin brýn nauðsyn fyrir nágrannalönd Úkraínu, og reyndar heimsbyggðina, að láta hryðjuverkastjórnina í Kænugarði hætta hernaði og hryðjuverkunum áður en nýtt Chernobylslys verður.


Stríðsglæpir NATO

Franskur rithöfundur og leikstjóri, Patrick Pasin, hefur lagt fram kæru hjá saksóknara í Brussel á hendur fyrrum framkvæmdastjóra NATO, Stoltenberg, fyrir stríðsglæpi. Hann hafi brotið bæði mannréttindalög, stofnskrá Sameinuðuþjóðanna og NATO og aukið...

Nýr Göbbels?

Hernaðarklúbburinn NATO hefur nú fengið nýjan framkvæmdastjóra í staðinn fyrir Stoltenberg sem minnti mikið á Göbbels í sínum stríðsæsingaræðum. Mark Rutte er ekki mikið líkur Göbbels nema kannske í sinni.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband