Gaggalagó
28.10.2021 | 14:02
Sósíalistarnir og þróunarlandabúarnir á hanaprikunum hjá Sameinuðu þjóðunum eru farnir að gala af æsingi og hóta aðildarlöndum með hörmungum, sömu og síðustu 33 árin:
-" við erum enn á leiðinni í hamfarahlýnun upp á 2,7 gráður Celsíus. Vísindamennirnir eru skýrir á staðreyndunum. Leiðtogar þurfa að vera jafn skýrir í áætlunum um að forðast hamfarahlýnun"-
https://twitter.com/antonioguterres/status/1453027775024095234
-António Guterres (@antonioguterres)
Vandaðir sjálfstæðir vísindamenn vísa fölsunum frá Sameinuðu þjóðunum á bug. "Hamfarahlýnunin" er þegar orðin -1°C (kólnun) á þessari öld, hér og víðar. Loftslagsbreytingar
Litla Ísland, sem á heimsmet í koltvísýringslausri orkuframleiðslu, sendir 50 manns á loftslagssirkusinn í Grænugróf. Ætli þeir geti kolefnisjafnað skemmtiferðina? Hver ætli borgi? Kannske þeir sömu og borga fyrir barnalegar loftslagsaðgerðir ESB/EES?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reglugerðaáþjánin
26.10.2021 | 20:19
Leiðari Morgunblaðsins 26.10 segir að ríkisstjórnin þurfi að standa við stóru orðin um að grisja regluverkið. Það er fróm ósk en til of mikils mælst. Nýkjörið Alþingi og langar-að-sitja-áfram-ríkisstjórnin þarf að losa landið undan EES samningnum ef Ísland á aftur að fá að setja eigin lög og reglugerðir að vild. En langar-að-sitja-áfram-ríkisstjórnin ætlar að leggja áherslu á "loftslagsmál" ESB og SÞ.
Í leiðaranum eru dæmi frá eftirlitsbákninu:
-"Samkeppniseftirlitið sá á dögunum ástæðu til að hnýta í forsvarsmenn hagsmunasamtaka í atvinnulífi fyrir að hafa lagt orð í belg á vettvangi fjölmiðla um rof á aðfangakeðjum, yfirvofandi vöruskort, verðhækkanir - Samkeppniseftirlitið minnti á að samkeppnislög settu hagsmunasamtökum skorður í hagsmunagæslu og því yrðu forsvarsmenn þeirra að forðast umræðu um verð og verðlagningu. Af lagabókstafnum að dæma stendur Samkeppniseftirlitið raunar ekki mjög taustum fótum um þetta og langsótt að ætla forvígismönnum hagsmunasamtakanna að hafa með þessu reynt að ota tota félagsmanna sinna. En það er líka fjarstæðukennt hjá Samkeppniseftirlitinu að láta sem samkeppnislög upphefji á einhvern hátt tjáningarfrelsi nokkurs manns, sem tryggt er með stjórnarskrá"-.
(Taka ber fram að samkeppnislögin eru ESB-lög og stjórnarskrárbrot).
https://www.frjalstland.is/2019/08/25/samkeppnislogin-standa-i-vegi-fyrir-throun/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Viðskiptatækifæri EES
24.10.2021 | 18:36
EES-samningurinn útvegar okkur viðskiptatækifæri segja íslenskir stjórnmálamenn. Hann útvegar okkur fjárfesta til að eignast fjarskiptakerfi landsins. Það er spennandi að sjá hvað þeir eignast næst. Er EES fyrir hrægamma?
Óþægilegur sannleikur
22.10.2021 | 17:08
Margar ríkisstofnanir á Vesturlöndum, sem fá fjármagn til að halda loftslagsvánni lifandi, senda reglulega frá sér upplýsingar um loftslag sem eru "aðlagaðar" þeirra spálíkönum.
Ein af stofnunum Bandaríkjanna, NOAA, sér um að ýmiss óþægilegur sannleikur um loftslag sé látinn hverfa. Á vef stofnunarinnar hefur verið hægt að sjá tíðni fellibylja frá 1954. Þar sást að tíðnin hefur farið minnkandi. Nú hafa gögnin verið falin og breytt gögn sem sýna vaxandi tiðni komin í staðinn.
Falsfréttamiðlarnir flytja svindlið til sinna áhorfenda sem verða hræddir og halda að sé að koma loftslagsvá og hlaupa í að minnka kolefnissporið með umhverfisspillandi tiltækjum sem einhver græðir á.
Inconvenient tornado data disappears
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Síminn í EES-brask
19.10.2021 | 17:26
Í einkavæðingunni var fjarskiptafyrirtæki þjóðarinnar, Símanum, með grunnneti, úthlutað til einkaaðila. Lagnir og fjarskiptakerfi símans eru nú komin í dótturfyrirtækið Mílu sem er þar með einokunarfyrirtæki í lífsnauðsynlegum samskiptum landsins. En einkafyrirtækið Síminn hf á Mílu þó slík grunnnet þurfi að vera í þjóðareigu. En nú vantar eigendur Símans hf peninga og ætla að selja grunnnetið, Mílu.
-"Samkv. - Rúv - ætlar Síminn að selja frönsku "sjóðstýringarfyrirtæki" (les: hrægammasjóði) Mílu sem á mikla innviði, ljósleiðara um allt land.- Ég er á móti því að "veiðileyfi" verði gefið á íslensk heimili og fyrirtæki með þessu. Míla er fákeppnisfélag, sem jaðrar við að vera í einokurnaraðstöðu (tvíkeppni mætti kalla það). Slík aðstaða kallar alltaf á sjálftöku gegnum verðlagningu. Samkeppnislöggjöf okkar er evrópsk (ESB/EES-lög) og miðast við stóra, virka markaði. Hún nær ekki að verja okkur fyrir sjálftöku þeirra sem komast í forréttindastöðu"- (Ragnar Önundarson: https://www.frettabladid.is/frettir/veidileyfi-gefid-ut-a-islensk-heimili-med-solu-milu/
Okkar stjórnvöld þora ekki að aðhafast meðan fjaðrirnar eru reittar af smáþjóðinni Íslendingum. Reglukviksyndið í EES-samningnum gefur bröskurum í ESB veiðileyfi hér. Okkar stjórnvöld segjast ætla að "hefja skoðun"!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.10.2021 kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Parle vú franse?
18.10.2021 | 12:17
Þjóðarfyrirtækið Síminn, stofnað fyrir um 115 árum til þess að tryggja tjáskipti landsmanna, ætlar nú að koma símalögnum landsins undir Frakka. Þetta er ein af afleiðingum einka-og tískuvæðingar í lok 20. aldar sem heldur áfram að rífa niður sjálfstæði landsins. Okkar ráðamenn gera ekkert frekar en fyrri daginn.
Frakkar eru vel þekktir fyrir að véla vitlausar hugmyndir inn á heimsbyggðina enda franska vínið gott og gaman að koma á fund í París. Einu sinni ætluðu þeir að láta flugið tala frönsku. Einu sinni fengu þeir veðurstofur til að segja hektópaskal í staðinn fyrir millíbar. Einu sinni fengu þeir heimsbyggðina til að reyna að banna eldsneyti. Kannske verður bara hægt að tala á frönsku í lagnkerfi Ardiansímans á Íslandi! Allabadda fransí, biskví, ví ví!
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/10/18/siminn_langt_kominn_med_solu_a_milu/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
EES-andstaðan í Noregi
17.10.2021 | 12:22
Nýkjörið Alþingi virðist ekki líklegt til að endurheimta sjálfstæði landsins, líklegra er að nýkjörið Storting geri eitthvað í málinu fyrir bæði Noreg og Ísland.
Talsverð fjölgun EES-andstæðinga varð á norska þinginu í kosningunum í september. Mikill meirihluti vill beita neitunarvaldi í EES sem íslensk stjórnvöld hafa ekki treyst sér til. Það lítur út fyrir reiptog þegar 4. orkupakkinn kemur til norska þingsins.
Að dæma af svörum við spurningum Frjáls lands, Heimssýnar og Orkunnar okkar hafa margir þingmenn á Alþingi ómótaða stefnu um EES. Þess vegna þarf að fylgjast vel með Norðmönnum. Ísland mun fylgja Noregi út úr EES.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Arctic Circus
14.10.2021 | 18:00
Vel sótt skemmtun þó ekki verði lengur góð skemmtiatriði um opnun siglingaleiða (eru að lokast). Nikola ómaði af Kötu og sagði metan gríðarlegt gleymt vandamál. Og að hlýnun um 2° gæti þýtt 4° á Norðurslóðum (þær eru ekki almennilega á Jörðinni).
Nýjar rannsóknir enskra og þýskra vísindamanna sýna að gróðurhúsalofttegundir frá mönnum hafa hverfandi lítil áhrif á hita. Metan úr sífrera og endurheimtu votlendi hefur ómælanleg hlýnunaráhrif, 0,06°, koltvísýringur 0,5° ef magnið í loftinu tvöfaldast á næstu öldum (og verður um 0,08%).
Taka verður fram að hitinn hefur lækkað um 2-4°frá því Pictar, forfeður margra Íslendinga, byggðu Grænugróf (Glasgow)
Bloggar | Breytt 15.10.2021 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hörmungar orkuskiptanna
13.10.2021 | 13:39
Sjálfskipaðir álitsgjafar og Samtök iðnaðarins (Mbl.13.10.2021) halda að orkukreppan stafi af skorti á vindmyllum og sólarpanelum í Evrópu! Raunin er að það eru einmitt vindmyllur og sólarpanelar sem eru ástæða hörmunganna sem eru að vaxa fram í orkumálum Evrópu https://www.frjalstland.is
Bandaríkjamenn, sem þora að mótmæla lygum Biden-stjórnarinnar, eru nú orðnir hræddir um að hörmungar "orkuskipta" Evrópu muni smitast til Ameríku. Þeir segja að and-kolefnisstefna Evrópu bjóði upp á kennslu um "Grænar Nýjar Hörmungar": Snarhækkandi orkuverð og lamandi skort.
-"Alheims orkukreppan er sú fyrsta af mörgum á hreinorkuskeiðinu"-
-"Orkuverð þýtur upp í Evrópu og áhrifin breiðast út yfir Atlantshafið. Ástæðan er and-kolefnisstefna samskonar og Biden-stjórnin vill koma á í Bandaríkjunum-"
https://www.wsj.com/articles/europe-climate-lesson-for-america-energy-prices-fuel-wind-11631655375
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Raunveruleikinn rennur upp
11.10.2021 | 14:54
Herferðin gegn jarðefnaeldsneyti leiðir af sér als kyns dellur, ein er að nota "grænt vetni" (fengið úr vatni með raforku) til hitunar.
-"Að nota vetni sem grænan staðgengil fyrir jarðgas í hitakatla er nokkurn veginn ómögulegt - það mundi kosta gífurlegar fjárhæðir-" (Lord Martin Callanan, ráðherra í orkuráðuneyti Bretlands). Orkan sem þyrfti til að framleiða "græna" vetnið yrði um sex sinnum meiri en ef rafmagnið yrði notað beint til hitunar. Og rekstrarkostnaður vetniskatlanna yrði að minnsta kosti sex sinnum hærri en jarðgaskatlanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.10.2021 kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vindmyllur eða norðurljós?
8.10.2021 | 19:33
Stóri Bróðir verndar
5.10.2021 | 13:17
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orkustofnun
3.10.2021 | 12:11
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)