Blessun ESB

pasturepexels-photo-440731Hreinlæti íslenskra heimila er nú tekið að étast upp af "hringrásarhagkerfi" ESB/EES. Kámug eldhús, kámugir rusladallar, mikil vatnsnotkun, fýla um allt hús.

Ruslabílstjórarnir eru látnir taka haugloft (metan) á bílana tvisvar á dag meðan díselbílarnir koma tvisvar í viku. Stór hluti af skattfé sem sveitarfélögin taka af okkur fer í að framleiða ónýtt gums og haugloft í "jarðgerðarstöð"  sem þarf svo að niðurgreiða margfalt til að losna við það, lélegt og hættulegt eldsneyti.

Nú erum við látin keyra á bensíni sem búið er að sulla brennivíni út í: E10, lélegt eldsneyti sem skemmir eldri bíla.

Flugfargjöldin verða skattlögð upp úr pyngju landsmanna. Gullfoss fer að ganga aftur.

Niðurgreiddum, hættulegum, þungum og malbiksspænandi batteríbílum er prangað á óvitandi á kostnað skattgreiðenda.

Okurskattar eru á eldsneyti til að útrýma því og ná "kolefnishlutleysi" sem svinnir menn og þjóðir eru smám saman að hætta við enda byggt á trúarórum og valdagráðugum sameinuðuþjóðaskriffinnum sem gelta eins og óðir hundar einu sinni á ári og stundum oftar.

Þetta er allt í boði illa upplýstra ESB/EES-skrifara í Brussel sem framleiða óþarfar reglugerðir fyrir fransk-þýska stöðnunarbáknið sem EES lætur okkur bogna undir.

https://www.frjalstland.is/2022/11/27/utlend-sorphirda/

https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/

https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband