Nauðgunarhöfuðborg

sweden-916799_640Okkar frændur og fyrirmyndir, Svíar, eru að verða siðmenningarlegri upplausn að bráð eftir mannsaldra vanrækslu eigin menningar og sérstöðu. Eftir heimsstyrjaldirnar, sem Svíar stóðu utanvið, fylltust þeir bábiljum um að þeir hefðu sérstakt góðmennskuhlutverk í heiminum og tóku að sér að verða amma alls heimsins sem öllum vill gott gera. Kratastefnan með stjórnleysi, slappleika og siðmenningarspjöllum réð þróun sænska samfélagsins. Allt sænskt var haft að háði, fjarlægri menningu hossað, fjarlægar þjóðir rómaðar. Svíar hafa flutt inn heilu borgirnar af glæpahneigðum ungmennum frá þróunarlöndum sem eru hægt en örugglega að valda glæpavæðingu og upplausn í borgunum sem gamla menningarlandið ræður ekki við. Skotbardagar á götum úti, bókabrennur í tísku. Stokkhólmur er orðinn nauðgunarhöfuðborg Evrópu.

https://www.tbsnews.net/world/countries-highest-rape-incidents-144499

Ísland er á hraðri leið að samskonar upplausn og Svíþjóð, okkar ráðamenn virðast ekkert ráða við málin og fljóta sofandi að feigðarósi EES, Schengen og Sameinuðu þjóðanna.

Svíar misstu sjálfstæðið í hendur Brussel 1995 og eru nú á leið að missa hlutleysið í hendur NATO. Það er illur endir á góðum ferli, Svíþjóð barðist lengi gegn manndrápum Bandaríkjanna og NATO-landa um víða veröld. Það voru einmitt þau manndráp sem komu af stað flóttamanna- og hælisleitendastraumnum sem Svíþjóð fyrir sitt leyti ræður ekki lengur við. Þekking nútíma ráðamanna Svíþjóðar nær ekki lengra en svo að nú ætla þeir að láta Svíþjóð gerast meðlim í þessu sama NATO, stríðsklúbb Bandaríkjanna og stríðsvelda Evrópu, sem hefur valdið því að milljónir manna flýja sitt heima og valda vanda hjá Svíum og öðrum þjóðum.

https://www.frjalstland.is/2023/02/22/hnignun-nordurlanda-nordens-forfall/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband