Svaml um EES

hands-1655520_960_720Lög Evrópusambandsins, sem það ákveður að gildi í EES-löndum, verða æ fleiri, flóknari, óskiljanlegri og kostnaðarsamari fyrir litla þjóð. Nú ætlar utanríkisráðfrúin að láta Alþingi halda áfram að útvíkka og rimpa í EES samninginn með því að setja sérstök ný lög til að tryggja að ESB-lög séu æðri íslenskum lögum:

-"Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað-".https://www.althingi.is/altext/153/s/1392.html Í íslenskri þýðingu: Svaml um svaml um útúrsnúninga (það er ekki til orðabók um rassbögurnar frá erindrekum ESB).

Þetta er ekki bara svaml heldur vitlaus bókun, hún var svona:

"Vegna tilvika þar sem getur komið til árekstra á milli EES-reglna sem komnar eru til framkvæmdar og annarra settra laga, skuldbinda EFTA-ríkin sig til að setja, ef þörf krefur, lagaákvæði þess efnis að EES-reglur gildi í þeim tilvikum". Í íslenskri þýðingu: EES-lög eru æðri íslenskum lögum.

ESA (EES-eftirlitið í Brussel) hótar málsókn hlýði Ísland ekki og setji EES-regluverkið ofar íslenskum lögum. Sú hótun er lítilvæg, dómar EFTA-dómstólsins (les EES-dómstólsins) hafa ekki gildi á Íslandi nema stjórnvöld hér láti þá hafa gildi.

Skilji nú hver sem betur getur svamlið og flækjur EES-samningsins, langyrt, ógreinileg og óþörf eða skaðleg fyrirmæli í stíl gömlu einveldisþjóða ESB, þau henta Íslandi ekki og verða stöðugt þyngri baggi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekki ofar heldur framar.

Þegar tvenn lög rekast á þarf skera úr um hvor skuli gilda framar hinum. Það setur hvorug lögin "ofar" hinum.

Þetta á við hvort sem lögin eru séríslensk eða byggð á EES.

Guðmundur Ásgeirsson, 30.4.2023 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband