Vitfirring EES

Alþingi kom á (13.6.2021) lögum um "hringrásarhagkerfið", enn ein flækjan af 4 draumórakenndum EES-tilskipunum. Lögin eru tískulög umhverfispresta og Brussel sniðin að þéttbýlum menguðum svæðum. Kostnaðurinn á sveitarfélögin (mbl 17.11.2022) og heimilin verður mikill og óþarfur. Eins og lengi hefur verið þekkt er besta almenna aðferðin við að hringrása sorpi að urða það þar sem lífríki jarðvegsins brýtur það niður og býr til nýjan jarðveg skattgreiðendum og heimilum að kostnaðarlausu.

fireinvehiclepexels-photo-14299430Rafbílabruðlið á nú að framlengja og láta almenning borga milljarðafjöld (Mbl 16.11.2022) fyrir eigendur þungra, mengandi og vegslítandi rafhlöðubíla. Eigendur venjulegra bíla eiga svo náðursamlegast að fá að borga veggjöld ofan á allar álögurnar á eldsneytið og bílana þeirra. Þykkum bunkum af gagnslausum EES-lögum um "loftslagsmál" og "kolefnishlutleysi" hefur Alþingi komið á landsmenn, síðasta vitfirringin var samþykkt í fyrra og verið að söðla á landsmenn nú. https://www.althingi.is/lagas/151a/2012070.html

Umhverfistrúarprestarnir, og okkar máttlausi löggjafi sem hlýðir hverjum draumi á fætur öðrum frá Brussel, afsakar vaxandi áþján, skattlagningu og bruðl með því að verið sé að berjast gegn hlýnun loftslags. Það er óskammfeilin rangfærsla byggð á vísindafölsunum.

https://www.frjalstland.is/2021/06/14/vidskilnadur-althingis-13-juni-2021/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Hringrásarhagkerfið hefur verið afnumið.

Í stað þess að breyta úrgangi í jarðveg er hann settur á skip og siglt til útlanda þar sem hann er þrifinn, síaður og límdur með notkun efna og mótaður í nýjan varning.

Í stað þess að skola glerflöskur og nota aftur, eða mylja þær niður í hráefni, eru þær sendar til útlanda.

Í stað þess að framleiða í Evrópu með hagkvæmu jarðefnaeldsneyti eru hráefni send hinum megin á hnöttinn, framleidd þar með kolaorku, og siglt til baka á olíuknúnum skipum.

Í stað þess að nýta náttúruna skynsamlega með uppistöðulónum sem hækka grunnvatnsstöðuna og jarðvarmavirkjunum sem útvega bæði hita og orku á nú að þekja griðarsvæði fugla með vindmyllum sem saxa af þeim höfuð og vængi.

Bílar eiga að fara á batterí og til að búa þau til þarf að grafa upp fjöll og firnindi, gjarnan á svæðum þar sem náttúruspjöll eru ókeypis.

Það er nánast eins og ætlunin sé að rústa náttúrunni endanlega.

Geir Ágústsson, 21.11.2022 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband