Umhverfisöfgar ríða húsum

preacher-1905176_960_720.jpgUmhverfisprelátar tröllríða nú fjölmiðlum með yfirlýsingar sem eru hver annarri óraunsærri. Það alvarlega er að einn af valdsmönnum landsins, umhverfisráðherran, er í hópnum, hann berst gegn tilbúinni loftslagsvá ESB og vill sólunda fjármunum skattgreiðenda í það. Han vill m.a. "rafvæðingu flugsamgangna"! (Morgunblaðið 29.11.2019)

 

Ef reynt yrði að framkvæma það með því að setja rafvélar og bestu rafhlöðurnar í 767-vélarnar okkar, í staðinn fyrir þau 70 tonn af eldsneyti sem þær taka, yrðu þær yfir 4000 tonn að þyngd en eru nú undir 200 tonnum!

Að menn með svona litla þekkingu á náttúrulögmálunum séu settir í ráðherrastól með aðgang að sjóðum landsmanna er mikið áhyggjuefni. Og fólk er farið að spyrja sig hvernig þeir geta stöðugt útvarpað trúarsetningunum í fjölmiðlunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Hvernig á svo að losa sig við alla rafgeymana þegar þeir eru orðnir ónytanlegir - ekki gufa þeir upp !

Erla Magna Alexandersdóttir, 30.11.2019 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband