Við dönsum eftir pípu ESB

india-man-playing-flute-snake-450w-553541932.jpgÞegnar ESB-landa kjósa andstæðinga Brusselvaldsins, Bretar eru að fara út. En við dönsum eftir pípu ESB: Við ráðum ekki við glæpahópana frá ESB (sem hafa frjálsan aðgang hér vegna EES og Schengen). ESB-regluverkið um samkeppni stendur í vegi fyrir hagræðingu í íslenskum fyrirtækjarekstri.  Innflutningur á sýklamenguðum vörum frá ESB er hótun við heilbrigði dýra og manna. Gagnslaus taglhnýting við draumóra ESB um kolefnishlutleysi er að verða dýrkeypt.

Alþingi virðist ekki ráða við ásælni ESB í völd yfir landinu. Nú ætlar ESB að taka til sín yfirstjórn og stjórnsýslu yfir stærstu auðlind landsmanna með nýrri tilskipanahrúgu (orkupakka 3). Stór hluti þingmanna telja sig ekki þurfa að hlusta á rök heldur sofa heima. Það verða afkomendur þeirra sem fá okurháa orkureikningana þegar ESB-fyrirtæki fara að hirða arðinn af orkulindunum.

Orkukerfi landsins undir ESB


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Merry

 Það er hætta að gera eins og ESB vill . Kikdu á þessa youtube video :

https://youtu.be/ntJHSIMN2_s

Maðurinn talar um ESB til Irland rafmagns kapall sem á að koma fljótlega.

-----------------

STOPPA SCHENGEN SAMNINGURINN !!

Merry, 29.5.2019 kl. 18:41

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

 Merry flott YUTUBE  set það inn hjá mér. OK ? 

Valdimar Samúelsson, 30.5.2019 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband