Lögfræðingar útí bæ ráða ráðherra orkumála

"Þriðji orkupakki Evr­ópu­sam­bands­ins legg­ur ekki skyldu á ís­lensk stjórn­völd um að tengj­ast innri raf­orku­markaði ESB með sæ­streng og regl­ur hans varða ekki á nokk­urn hátt eign­ar­rétt á orku­auðlind­um á Íslandi,.." segir lögfræðingur ráðherra orkumála. Ráðherra hefur frá upphafi verið hlynnt 3ja orkupakkanum þó framkvæmd hans brjóti stjórnarskránna.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/09/17/thridji_orkupakkinn_vardi_ekki_eignarrett/

Þarna er farið í kringum aðalatriðið,-stjórnvöld munu ekki ráða því hvort sæstrengur kemur eða ekki,-né hvort Landsvirkjun verður skipt upp ef tilskipunin verður tekin upp.

Stjórnvöld munu ekki ráða ferðinni þegar stjórnskipulegur fyrirvari Íslands um tilskipunina er felldur niður af Alþingi. -Nema að semja sérstaklega um það við ESB.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞORA ÍSLENSK STJÓRNVÖLD Á KLÓSETTIÐ ÁN ÞESS AÐ FÁ RÁÐ FRÁ ESB  ?

 MEGA ÞEIR OKKUR AÐ MEINALAUSU SKRÍÐA FYRIR ÞESSUM EFTIRHERMUM HITLERS- AÐ GERA ALLA EVROPU HÁÐA EINRÆÐI  !

  FÖRUM AÐ SPYRNA VIÐ FÓTUM- OKKUR VANTAR AÐ VÍSU STJÓRN EN EKKI AÐ GEFA LANDIÐ TIL BRÚKS ESB.

Erla Magna Alexandersdóttir, 17.9.2018 kl. 19:10

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er spurning Erla,en yfirleitt gengur ræpan úr þeim í ræðustóli þar sem þeir geta spáð í hvort hún er ESB mikið mál.

Helga Kristjánsdóttir, 17.9.2018 kl. 20:56

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Á einhverjum tíma gefst fólk upp og tekur fram amboðin, þegar það þarf að búa við hverja drullusokka stjórnina af annarri og ekkert þjóðhagslega vitrænt gerist.  En það er gaman í þinginu þegar bunki af reglum og tilskipunnum kemur frá Evrópusambandinu, þá þarf ekkert að hugsa, bara samþykkja í nokkra daga og þingið vinnur stórkostlegt afrek.  Þá er náttúrulega þörf til að hvílasig aðeins.

Það sniðuga í þessu öllu saman er Bjarni Ben. Formaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur helst staðið í ströngu við að mynda ónýtar stjórnir, sem hann hefði betur látið ógert.  Greind Bjarna virðist falla ágætlega að peningum, en lengra nær hún ekki, nema kannski út í eyrun og kúlulána drottningin hvíslaði að honum á lokametrum í ICESAVE og hann snéri umsvifa laust við blaðinu og gerðist kaldur gaur. 

Svo grenjaði hann í sjónvarpi, en staðreyndin er sú að hann var alveg nákvæmlega jafn vitlaus í þessu máli og Steingrímur sem sagði þegar dómur Evrópudómstómstólsins féll okkur í vil og rökin fyrir honum komu fram.  Meiningin í því sem Steingrímur sagði var.  Nú var þetta svona, ég vissi það ekki.

Þetta eru því afburða gáfumenn báðir tveir og eru enda saman í stjórn og Steingrímur hinn undirförli og ósannsögli er fyrir mátt Bjarna Ben orðin forseti alþingis.   

 

  

Hrólfur Þ Hraundal, 18.9.2018 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband