Við erum að missa landið úr höndum okkar

landbuna_urpexels-photo-210186_1326204.jpg

 

 

 

 

 

Lesendur þessarar bloggsíðu vita að við erum að missa landstjórnina úr höndunum. Nú er komið á daginn að við erum líka að missa sjálft landið úr höndum okkar í hendur auðmanna í ESB. Ástæðan er EES sem leyfir ESB-búum að eiga land hér. Fjöldi jarða og heil svæði eru orðin erlend eign, auðlindir meðfylgjandi. Bændur hafa lítið mótstöðuafl gegn ríkum landkaupendum þar eð EES-regluverkið hefur opnað fyrir innflutning á niðurgreiddri og smitandi landbúnaðarvöru frá ESB sem dregur úr afrakstri íslensks landbúnaðar. Ögmundur Jónasson gat fælt landbraskarana frá þegar hann var ráðherra innanríkis. En hann er hættur og núverandi ráðamenn gera lítið nema komi EES-tilskipun frá Brussel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Er ekki einhver málsgrein í stjórnarskrá okkar sem setur útlendum eigendum takmörk varðandi landareign sína?  

Helga Kristjánsdóttir, 23.6.2018 kl. 19:02

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Helga það eru Íslensk lög sem meina útlendingum að kaupa löng á Íslandi og ég vissi ekki betur en að það lög væru æðri en lðg ESB. Líklega líta stjórnmála menn ekki á það. Ég veit líka að það eru nokkrir sem eru leppar fyrir jarðarkaup svo landinn sjálfur stenst ekki freistingarnar og þvífer sem fer. Já við missum landið og verðum svo leiguliðar.   

Valdimar Samúelsson, 23.6.2018 kl. 19:24

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Einhverjum var upphaflega selt EES á þeim forsendum að við fengjum allt fyrir ekkert - sem hefur sannast að voru öfugmæli. 

Kolbrún Hilmars, 23.6.2018 kl. 20:31

4 Smámynd: Merry

Nei nei þetta er ekki samþykkt.

Merry, 24.6.2018 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband