Sæstrengur frá ATLANTICSUPERCONNECTION

Fyrirtæki sem heitir ATLANTICSUPERCONNECTION hefur lengi unnið að undirbúningi sæstrengs frá Íslandi. Heimasíða þeirra veitir miklar upplýsingar um framgang verkefnisins.

Þar kemur m.a. fram að fyrirtækið hafi góð pólitísk samskipti, sérstaklega við ráðherra í nýrri ríkisstjórn og einnig þvert á flokklínur "
logo asc

"Through the recent changing political landscape in Iceland, Atlantic SuperConnection has maintained and built strong relationships with Icelandic Ministers. Cross-party support for The SuperConnection in Iceland is growing."

Þar er fullyrt að verkefnið "Task Force" hafi verið endurvakið 2017 og viðræður séu á milli ríkisstjórna: "The Task Force issued its Joint Statement in July 2016, which was supportive of The SuperConnection. The Task Force was reconstituted in 2017 and discussions are continuing between the UK and Icelandic Government."

Fyrirtækið segir tækni og fjármögnun sé tryggð, fyrirtækið mun sjá um framleiðslu sæstrengsins, lagningu og tengingu hans. Landsnet sjái um flutningslínu á Íslandi. Fjármögnun verður hjá bönkum, og sjóðum, m.a. lífeyrissjóðum. Eina sem vanti sé pólitískar ákvarðanir á Íslandi og stuðningur frá ríkisstjórn Bretland.

Tengiliður fyrirtækisins á Íslandi er tengslafyrirtækið KOM.

Stofnandi fyrirtækisins er Edmund Truell, sem er orðaður við kaup á hlutum í HS Orku.

Af öllu þessu, er erfitt fyrir ráðherra að neita því að þau vinni markvisst að því að tryggja framgang málsins með því að samþykkja 3 orkupakkann og tryggja ICE LINK sem forgang í orkukerfi ESB.

Þrátt fyrir að ráðherrar reyni að telja almenningi trú um að samþykkt 3 orkupakka ESB sé ótengt sæstreng, er hér upplýst að svo er ekki, -og þar er sérstakt hve hljótt hefur verið um þetta mál,-hver er ástæðan?

Superconnector


Sundurlimun orkufyrirtækjanna

butcher-vintage-butcher-meat-cleavers-cloth-towel-dark-concrete-wooden-kitchen-board-82725026.jpgsamkvæmt tilskipun frá ESB (96/92) varð til þess að orkukerfi landsins urðu flóknari, þunglamalegri og óhagkvæmari. Margar fleiri tilskipanir hafa hjálpað til að gera orkugeirann tregari í uppbyggingu og kostnaðarsamari. Orkuverðið er orðið of hátt og við bætist að orkufyrirtækin hafa komist fram með að hækka orkuverð meir en þörf er á svo sumir orkukaupendur eru að kikna á meðan Landsvirkjun skilar metgróða.

EES hefur skaðað orkukerfi landsins

 

Ísland býður ekki lengur upp á hagkvæma orku eins og fyrir daga EES. Orkukerfið er tvístrað og tregt og umgirt hömlum EES. Orkupakki ESB nr. 3 mun færa stjórnvald yfir orkugeiranum til ESB sem ætlar að leiða nærri helming orku landsins til ESB 2027 en það mun afnema lífskjarabót Íslendinga af orkulindunum.


Bloggfærslur 9. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband