Sæstrengur á verkefnalista stjórnvalda

Ýmis samskipti hafa átt sér stað milli íslenskra og breskra stjórnvalda um lagningu sæstrengs. Eftir heimsókn David Cameron til Íslands í okt 2015 var sett á fót vinnuhópur, "Task Force", sem átti að skila skýrslu innan 6 mánaða, sem var skilað í mai 2016. Niðurstaða vinnuhópsins var að frekari ákvarðanir yrðu að að vera á milli stjórnvalda um útfærslu reglugerða, og sameiginlegra kostnaðargreiningu á sæstrengsverkefninu.

https://assets.publishing.service.gov.uk/government/uploads/system/uploads/attachment_data/file/537124/icelandstatement.pdf

Svo virðist sem að Brexit niðurstaðan hafi truflað framhald viðræðnanna, því í viðtali við The Guardian sumarið 2016, segir Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar þá vanta tryggingu fyrir föstu verð til langs tíma, og hefur áhyggjur yfir því að BREXIT muni trufla ferlið.

cameron

Önnur frétt í bresku blaði, The Telegraph,(sjá skrá BB í Telegraph) frá því í sumar segir að íslenski fjármálaráðherrann hafi verið að leita eftir því við bresk stjórnvöld að fá fast verð svo hægt sé að halda áfram með sæstrengsverkefnið. 

Þetta sýnir svart á hvítu að sæstrengur er á verkefnalista íslenskra stjórnvalda, þó þau láti sem svo sé ekki. Það vekur upp margar spurningar um heilindi stjórnvalda og upptöku 3 orkupakka ESB sem fyrst og fremst snýr að samtengingu orkukerfa yfir landamæri.

 Greining ESB á Icelink


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 7. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband