Stjórnartíðindi ESB - (fjór)helsi íslenska samfélagsins.

ees viðbætir

Vefsíðuhluti EFTA heitir: EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins og geymir allar íslenskar þýðingar á gerðarflóðinu frá ESB.

Það sem af er árinu er búið að þýða um 2oo gerðir (nokkur þúsund blaðsíður) sem kallast á stofnannamáli EES; Tilskipanir, Reglugerðir, Tilkynningar, Ákvarðanir og eitthvað meira. Allt þetta flóð rennur athugasemdarlaust gegnum Alþingi, í ráðuneytin og svo til stofnanna ríkisins. Afleiðingin er enn aukin kostnaður fyrir atvinnulífið og almenning, sem var metinn 150 milljarðar á ári 2014- og ríkisútgjöld halda áfram að vaxa eins og púkinn á fjósbitanum vegna þessa. 

Í þessu gerða flóði er megnið hlutir sem okkur kemur lítið við, en allt sagt falla undir fjór-Helsið. Okkar litla samfélag er gert skylt að taka þetta flóð á sig eins og milljónaþjóðir. Hvenær á að bregðst við þessum ósköpum?   


Bændur þora

baendur944365.jpgFélagasamtök bænda hafa nú sent ríkisstjórninni áskorun og hvatt hana til þess að endurskoða EES-samninginn. Bændur sýna með þessu meira þor en aðrir atvinnuhópar: Þeir eru fyrstir til að kveða upp úr með EES.(Morgunblaðið 27.2.2019)

 

Endurskoðunin þarf að ganga hratt, flóð af sýklakjöti og lyfjaþolnum sýklum er að hefjast.

Fyrirskipa innflutning á hráum dýraafurðum


Einkavæðing banka, önnur tilraun?

sparisjo_ur1337870722-sp-2.jpgÍslenska bankakerfið var einkavætt í kjölfar EES-samningsins og draumórafrjálshyggju 9. og 10. áratugarins. Regluverk EES blés bankakerfið út og landið fylltist af útlendu lánsfé. Svo hrundi bankakerfið. Nú er verið að leggja drög að annarri tilraun til einkavæðingar, sömu kreddur og í fyrri tilraun gegn rekstri ríkis, bæja og almannafélaga. Það sem er mest ógnvekjandi er að ESB hefur gegnum EES enn umfangsmeira stjórnvald nú yfir fjármálafyrirtækjunum og Fjármálaeftirlitinu en fyrir hrun (Fjármálaeftirlitið var nærri búið að koma Sparisjóði Suður-Þingeyinga í strand með ónothæfum EES-reglum).

Einn af þeim fáu úr fjármálakerfinu sem fóru uppistandandi í gegnum blekkingavef EES og einkavæðingar var Ari Teitsson, stjórnaformaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Ari er undrandi á 2 nefndum sem gefa stefnu í andstæðar áttir, önnur vill að félagslegt húsnæði sé í höndum arðleysisfélaga, hin vill einkavæða bankakerfið á ný. Ari spyr hvort bankaþjónusta sé ekki á færi almennra þjóðfélagsþegna og félaga þeirra? Eins og sparisjóðurinn.(Fréttablðaið 26.2.2019)

Við ættum kannske að fara norður til Ara áður en bankakerfið verður braskvætt aftur. Sparisjóður Suður-Þingeyinga stendur enn keikur. Við þurfum að minnsta kosti að bíða með einkavæðingar þar til EES-hefur verið sagt upp svo hægt sé að setja nothæft regluverk um bankastarfsemina og taka hana undir íslenska a stjórn.

Fjármálageirinn undir stjórnvald ESB


Völd og peningar til ESB, sýklar hingað

serious-senior-office-manager-giving-orders-now-go-work-ambitious-tireless-overweight-worker-sitting-desk-managing-.jpgStjórnvöld geta ekki varið hagsmuni landsins, þau eru nú að makka við ESB um "loftslagsmál" sem getur kostað þjóðina hundruðir milljarða; og að setja Alþingi undir leyfiskerfi ESB og að afsala afrakstri auðlindanna.

 

Og nú er ákveðið að við fáum sýklamengað kjöt á pönnuna og út í sveit þar sem dýrin okkar geta smitast.

https://www.frjalstland.is/2019/02/23/stjornvold-geta-ekki-varid-hagsmuni-landsins/


Alþingi verður óþarft, þarf að fá samþykki frá ESB um lagasetningar.

Nú er verið að ræða innan EES fyrirmæli frá ESB að öll íslensk lagafrumvörp Alþingis og reglur íslenskra sveitafélaga skuli senda til ESB þremur mánuðum áður til samþykktar. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum, 

https://www.abcnyheter.no/nyheter/politikk/2019/02/20/195553957/solberg-ber-om-meldeplikt-til-eu

Þar segir m.a:

"Þegar stjórnvöld eða sveitarfélög hyggjast taka nýjar ákvarðanir sem hafa áhrif á þjónustumarkaðinn munu þau skyldug að tilkynna framkvæmdastjórn ESB, og eftirlitsaðila ESA, a.m.k þremur mánuðum áður en ákvörðunin öðlast gildi. Í þeim tilvikum þar sem þeir telja að ákvörðun muni fela í sér mismununarmeðferð mismunandi þjónustuveitenda, þá skal framkvæmdastjórnin eða ESA stöðva slíkar ákvarðanir..."

Þetta er staðfesting á að verið er að troða landinu inn í ESB, allt í boði íslenskra stjórnmálamanna gagnvart tilskipunarflóði ESB, sem er að ná hámarki með þessu.

Stutt er þá í að íslensk stjórnvöld verði að fá samþykki ESB fyrir efnahagsstjórn landsins.


Schengen er löngu hrunið

police-guarding-waiting-line-refugees-tovarnik-croatia-september-guards-september-croatia-68054256.jpgEinn barnslegasti draumur ESB er um Bandaríki Evrópu og afnám landamæra. Það var sett í verkið með s.k. Schengensamningi sem afnam vegabréfakvaðir og fól jaðarlöndum ESB að vera "framvarðalönd" gegn umheiminum. Ísland ánetjaðist Schengen að óþörfu. 

Nú hefur komið í ljós að "framvarðalöndin" ráða ekki við flóttamannaflóðið úr suðri. Og aðildarlönd Schengen eru farin að byggja múra á landmærum sínum, í trássi við Schengen, til að hafa hemil á flóðinu. Það veit enginn hvað margir flóttamenn eru komnir til Norður-Evrópu. Schengen er hrunið til grunna.


Við ráðum okkur ekki sjálf

stock-photo-bureaucracy-172084331_1339588.jpgTilskipanirnar sem Alþingi á að stimpla í vetur, svo ekki sé talað um hauginn (um 200) sem ráðuneytin stimpla, taka af okkur stjórn á okkar eigin málum. Við getum sjálf búið til lög ef þarf, það hefur alltaf gengið best há okkur þegar við höfum  verið í friði fyrir evrópskum valdsboðum frá Kónginum, kirkjunni, og Brussel.

Við lestur þingmálanna og tilskipananna vakna spurningar um af hverju Íslendingar ráða ekki sínum málum sjálfir, af hveju getur ESB sagt okkur fyrir verkum? Svarið er einfalt: ESB ræður meðan EES er í gildi! Alþingi þarf að stimpla 75 tilskipanir í vetur


Bandaríkin tryggingin fyrir sjálfstæði landsins

mike1114275.jpgUtanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til þess að endurnýja og efla samskiptin. Nú þegar yfirráðastefna ESB hefur verið afhjúpuð og barátta Breta við sambandið hefur sýnt hvað ESB er í raun og veru, er afgerandi fyrir Íslendinga að styrkja böndin við Ameríku. Heimsókn Mike Pompeo er mikilvægur þáttur í því (Mbl 16.2.2019).

Bandaríkin tryggja sjálfstæði Íslands


Jim Radcliffe: ESB ekki lengur samkeppnishæft

jim_radcliffe931048.jpgJim Radcliffe hinn enski, sem á eitt stærsta efnaiðnaðar-fyrirtæki heims og er umhverfisunnandi eins og Vopnfirðingar vita, sendi forseta framkvæmdastjórnar ESB bréf í fyrradag:

 

"-Alls enginn í mínum starfsgeira fjárfestir lengur í alvöru í ESB. Og hafa ekki gert það í mannsaldur. -Þeir fjárfesta í Bandaríkjunum, Mið-Austurlöndum eða Kína. Evrópa var heimsleiðandi í efnaiðnaði með 30% hlutddeild fyrir ekki löngu, nú hrunið niður í 15%.-

-ESB er ekki lengur samkeppnishæft. Þar er orkan sú dýrasta í heimi og vinnulöggjöf sem býður atvinnurekendum ekki heim. Verst af öllu eru grænir skattar sem í besta falli er hægt að lýsa sem heimskulegum þar eð þeir hafa öfug áhrif við það sem ætlunin var. Bandaríkin eru á fullri ferð í uppbyggingu - gríðarstór verkefni í byggingu iðnaðar með brot af þeirri mengun sem áður var-"

Bréf Radcliffs til Junckers

 


ESB-umbar fá fleiri veiðileyfi á Íslendinga

judge-delivering-sentence-grave-sentencing-inmate-115410261_1339445.jpgNú eiga erindrekar EES að fá vald til að leggja upplýsingaskyldu á fyrirtæki og stofnanir landsins að viðlögðum háum sektum. Og ef þau borga ekki fá erindrekarnir að gera aðför að fyrirtækjunum. Þetta vald eiga auðvitað bara íslenskar stofnanir að hafa. ESB vill geta njósnað um fyrirtæki og stofnanir til þess að geta komið í veg fyrir að þau fái ríkisaðstoð (svo braskarar í ESB geti lagt þau undir sig fyrir lítið!)

Stjórnvöld okkar hafa verið að makka við ESB um meiri völd til sambandsins gegnu EES. Fyrirtækjaeftirlit með ríkisaðstoð, samkvæmt regluverki ESB, er það nýjasta.  Áframhaldandi fullveldisafsal


Betra að vera utan EES fyrir sjávarútveginn?

"Fyr­ir ári var greint frá því í Morg­un­blaðinu að Evr­ópu­sam­bandið hefði samið um víðtæk­an fríversl­un­ar­samn­ing við Kan­ada þar sem gert væri ráð fyr­ir 100% toll­frelsi fyr­ir sjáv­ar­af­urðir og 98% toll­frelsi fyr­ir inn­flutn­ing til...

Þrælahald í boði EES samningsins.

„Þetta er ekki eins­dæmi og því miður ber­ast ör­ugg­lega ekki öll svona mál til okk­ar því marg­ir fara til síns heima aft­ur eft­ir að hafa verið beitt­ir at­vinnu­of­beldi. Bar­átta verka­lýðshreyf­ing­ar­inn­ar til margra ára gegn...

Misskilningur um EES á hærra plani

Haldinn var halelújafundur um EES í gær og gömlu lummurnar á borðum, Aðalatriðin (kostnaður, verslunarhöft, erlend áþján osfrv) hafa líklega ekki verið áhugaverð. Ráðherra utanríkismála spurði - "hvort einhverjum dytti í hug að Ísland gæti náð tvíhliða...

Er ráðherrann kominn í ESB buxurnar?

"Hærra plan" hjá utanríkisráðherra er væntanlega meiri lofsöngur um EES. Það er einkennilegur málflutningur að spyrða saman þá sem vilja ganga í ESB, og hina sem sjá hættuna við sofandahátt stjórnmálamanna gangvart ákvörðunarvaldi evrópskra stofnanna sem...

"Sérstakur staður í helvíti" - fyrir þá sem vilja losna úr ESB.

Segir Tusk , forseti leiðtogaráðs ESB Þetta sýnir vel miðstýrðan hugsunarhátt embættismanna ESB,- þessi yfirgangssemi er komin fram í framkvæmd EES samningsins. ESB ákveður hvaða tilskipanir þess skuli teknar upp í EES samninginn og þvingar þær fram....

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband