Árið 2018: Upphaf nýrrar frelsisbaráttu

iceland-planet-earth-highlighted-red-d-illustration-detailed-surface-elements-image-furnished-nasa-94668527.jpg

Smáþjóðir þurfa stöðugt að berjast fyrir frelsi og sjálfstæði, jafnvel þó þær búi á úthafseyju. Á þessu ári var öld síðan við sömdum okkur frá dönsku yfirvaldi.

En það sem er minnisstæðast frá árinu 2018 er að þá hófst fyrir alvöru baráttan gegn öðru og stærra valdabákni en því danska: Evrópusambandinu sem við lentum undir fyrir aldarfjórðungi með EES-samningnum.

 

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamla árið!


Er EES alþjóðlegt?

irritated-committee-three-people-shouting-speaker-78550313.jpgBjörn Bjarnason er formaður starfshóps Guðlaugs Þórs um EES-samninginn sem á að skila af sér næsta haust. En álit Björns kom i dag í Morgunblaðinu:

 

EES-aðild í stjórnarskrá

Björn segir m.a.: "---fræðimenn getur greint á um hvort EES-gerð sé þess eðlis að hún rúmist innan stjórnarskrárinnar. Þeir eru hins vegar allir sammála um að laga beri stjórnarskrána að alþjóðasamstarfi--- Ótti stjórnmálamanna ræðst af andstöðu við aðild Íslands að ESB. Þar tengjast illu andarnir sem áður er getið. Þá má kveða niður með því að festa aðildina að EES eina í stjórnarskrána---"

Fullyrðingin "fræðimenn allir sammála" er rökleysa og staðlausir stafir. EES er ekki "alþjóða" heldur "milliríkja" og svæðisbundinn. Grundvöllur EES er ekki "samstarf" heldur "stjórnvaldsafsal" til ESB.

Að festa samning um afsal stjórnvalds til hrörnandi og einangraðs yfirþjóðlegs valdabákns í stjórnarskrána er svo fjarstæðukennt að það þarf ekki að ræða. Það sem þarf að ræða, fyrir utan stjórnarskrárbrot vegna EES,  er hinn mikli og vaxandi skaði sem EES-samningurinn veldur.

Samtökin Frjálst land hafa gert úttekt á mörgum þáttum EES, sjá meðal annars:

Goðsagnirnar um EES-samninginn

Ábati og ókostir EES

Afleiðingar tilskipanavaldsins

Valdastofnanir ESB og EES samningurinn


Gleðileg jól!

frjalst_land_jolakorthreinmynd.jpg


Að flæma mjólkurkýrnar úr landi

hverfandi.pngÞað virðist vera orðin stefna stjórnvalda okkar að flæma helstu mjólkurkýr þjóðarinnar, iðnfyrirtækin, úr landi. Raforkukerfi okkar er orðið óhagkvæmara vegna EES-tilskipana sem óþarfi var að samþykkja og stefnan er frekari skemmdarverk (3. pakkinn). Orkuverð frá orkuverum þjóðarinnar er auk þess búið að hækka yfir eðlileg mörk sem íþyngir fyrirtækjunum.

Ofan á þetta bætist svo að búið er að koma stjórnlausu braskkerfi ESB um koltvísýringslosun yfir íslensk fyrirtæki sem eru látin senda vaxandi fúlgur fjár til ESB í "kvótakaup". Og á dagskrá er að bæta um betur og  setja mest alla starfsemi í landinu í nýtt ESB braskkerfi, ESR. Það eru engar skuldbindingar Íslands sem gera nauðsynlegt að taka þátt í braskkerfum ESB. En samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja fer hríð- versnandi miðað við þau lönd sem við keppum við en þau eru ekki með kvótabraskkerfi eins og ESB/EES. En eyðimerkur Íslands bíða eftir að vera ræktaðar upp og mætti nota féð sem nú fer til ESB í það.

Að flæma fyrirtæki úr landi


Stofnanaumgjörð EES gengur ekki upp

bjarniben6218.jpgBjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sem gegnum sína reynslu þekkir EES- samninginn vel, ræddi hann við Pál Magnússon. Morgunblaðið 17.12.2018 hefur eftir Bjarna:

"Ég er þeirrar skoðunar að ESB hafi gengið of langt í of mörgum málum á undanförnum árum í því að reyna að fá okkar hóp, það er að segja EFTA-megin, Íslendinga þar með, til þess að fella sig við einhverja stofnanaumgjörð sem bara gengur ekki upp. Mér finnst það vera mjög mikið umhugsunarefni hversu mikil vinna hefur farið í það að sníða sérlausnir sem standast íslensku stjórnarskrána. Þetta hef ég oft gert að umtalsefni í þinginu og er áhyggjuefni í Evrópusamvinnunni; að það þyki bara boðlegt gagnvart Íslandi að krefjast þess að vald sé framselt til stofnana sem við eigum enga aðild að".

Sjá nánar um upplausn stjórnkerfisins á heimasíðu Frjáls lands


Óþörf kvótakerfi ESB hækka flugfargjöldin

mom2_width-500.pngOkkar stjórnvöld hafa átt erfitt með að verja hagsmuni okkar og halda álögum í skefjum. Nýlega létu þau ESB teyma okkur með í "losunarkvótakerfi" fyrir koltvísýring, ETS, það tekur stórfúlgur frá flugfélögunum og flytur til ESB og veldur hærri fargjöldum hjá okkur. Þetta var óþarfi, engar skuldbindingar Íslands um koltvísýringslosun kölluðu á að við þyrftum að vera með í ETS. Það eru fá lönd á heimsvísu með slík kvótakerfi enda reynst svindl- og braskvæn en ónýt við að minnka útblástur.

Það sem verra er er að okkar stjórnvöld eru nú að leggja drög að enn frekari flutningi milljarða frá Íslandi til ESB (Mbl 14.12.2018). Reiknað hefur verið út að við þurfum að blæða nærri 300 milljörðum í ESB-kerfin næsta áratug! Það þarf því að kalla umhverfisráðherran heim áður en hann sóar meir af peningunum okkar. Skuldbindingapakkarnir í ESB kerfin um losun koltvísýrings, ETS og ESR, eru að verða svo fáráðnlegir að reyna þarf að vinda ofan af þeim og setja í staðinn í gang íslensk kerfi og nota peningana í ræktun hér heima.


Orkan orðin of dýr

kertipexels-photo-278823.jpgRaforkufyrirtækin, sem eru í okkar eigu, láta okkur borga of mikið fyrir orkuna. Bæði hafa EES-tilskipanirnar klofið fyrirtækin í minni og óhagkvæmari fyrirtæki og hleypt upp kostnaðinum. En líka hafa orkufyrirtækin komist fram með að hækka verð að óþörfu. Stjórnvöld okkar, sem eiga að stjórna orkufyrirtækjunum fyrir okkar hönd, standa sig ekki

"Aðskilnaðurinn var gerður á milli framleiðslu og flutnings á raforku með nýjum raforkulögum 2003. Var það í takt við samninga um aðild Íslands að EES. Fullyrt var við þessa breytingu að þetta væri gert "til að láta samkeppnina leiða til hagræðingar og sjálfbærrar nýtingar á auðlindinni, notendum rafmagnsins og eigendum að auðlindinni til hagsældar". Reynslan fyrir almenna neytendur, sér í lagi í dreifbýli, virðist þó hafa verið þveröfug". (Bbl 28.10.2016).

Stjórnvöld okkar eru farin að reyna að fela óstjórn orkumála með trúarsetningum ESB ( til dæmis "samkeppni og sjálfbær nýting"). Árangurinn í ESB er hæsta raforkuverð í heimi og götubardagar út af háu eldsneytisverði.

 


Orkuóeirðir hafnar í ESB

riot-police-during-student-strike-450w-623531243.jpgAlmenningur í París er farinn að berjast á götum úti vegna ofurskatta á eldsneyti. Og ekki tekur betra við þegar á að fá fólk til að nota rafmagn. Í ESB er raforka einna dýrust í heimi.

 

 

Orkumál ESB eru í raun hrunin til grunna og óeirðirnar nú mögulega upphafið að almennri uppsteit gegn orkustefnu ESB. Íslendingar eru að dragast meir og meir inn í draumórastefnu ESB um orku vegna EES-samningsins. Orkuóeirðir í ESB.


Villt þú borga undir rafbílana?

heavy_pexels-photo-1566403.jpgESB sendi okkur EES-tilskipun um að auka notkun "endurnýjanlegra orkugjafa" (eins og kunnugt er eru Íslendingar heimsmethafar í því og engar líkur á að ESB nái okkur nokkurn tíma). Alþingi hljóp svo á eftir ESB eins og venjulega og ályktaði um "orkuskipti í samgöngum"

Ekki var reiknað út hvað þetta mundi kosta skattgreiðendur og bílaeigendur en komið hefur í ljós að skattaafslættirnir og niðurgreiðslurnar með rafbílunum eru svo stórar fúlgur að rokhækka þarf álögur á okkur sem keyrum venjulega bíla (Valdimar Jóhannesson, Mbl 5.12.2018). Það er ekki svo að rafbíll sé eitthvað umhverfisvænni en bensín eða díselbílarnir okkar. Þvert á móti. Umhverfisáhrif þeirra eru mikil og ekki sér fyrir endan á þeim ef rafbílum verður áfram prangað inná almenning með skattaafsláttum og styrkjum.

Lítill rafbíll sem vegur eitt og hálft tonn hefur svipaða orku og skellinaðra og kemst ekki langt ef er þungfært og kaldur mótvindur og miðstöðin á. Rafbílar eru hættulegir, þungir og geta rafblossað upp.  Og svo þarf að bíða í biðröð eftir að geta hlaðið þá á leiðinni (við niðurgreiðum það líka)og fá kvef á meðan.

Rafbílavæðing er byggð á vanþekkingu og fölsunum og er þung í skauti umhverfisins á jörðinni og venjulegs fólks sem er farið að berjast á götum úti (París) gegn eldsneytissköttunum.


Áfengissala samræmist ekki EES

beer-hands-cheers-man-woman-giving-two-glass-one-litter-mugs-isolated-white-background-44765336.jpgEftirlitsstofnun EES-samningsins í Brussel hefur nú sent þjóðinni bréf og sagt að sala áfengis í Áfengisverslun ríkisins í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli samræmist ekki EES-samningnum.

Erindrekar EES eru orðnir önnum kafnir við að segja fyrirtækjum og stofnunum íslenska ríkisins fyrir verkum og reka nú nefið ofaní kopp ÁTVR. Kannske verðum við að senda bænaskjal til Brussel og biðja náðursamlegast um að fá að kaupa almennilegan toll eins og við erum vön. Við gætum kannske bara afritað eitthvert gamalt bænaskjal til Danakonungs frá átjándu öld.


Fullveldið, NATO, EFTA, ESB,- framsal valds

Í grein í aukablaði Morgunblaðsins í dag, 1.des. eftir Ásgerði Ragnarsdóttur dómara, segir hún m.a: "..Frá því að EES-samn­ing­ur­inn tók gildi árið 1994 hafa skuld­bind­ing­ar ís­lenska rík­is­ins auk­ist veru­lega og hef­ur sam­starfið kraf­ist þess að...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband